7/1/2020 Vinnuhelgi SUFHelgina 25.-26. janúar ætlum við að fara í ferð upp í Borgarfjörð og skemmta okkur. Að kalla þetta vinnuhelgi er að þessu sinni bara formlegt heiti þar sem það verður enginn skipulögð vinna heldur er mæting á Hótel Varmaland kl 13:00 og síðan verður farið í óvissuferð og komið til baka í kvöldmat á hótelinu.
Við höfum fengið tilboð í gistingu á hótelinu sem er: Verð á tveggjamanna herbergi með morgunmat 14.900 kr (7.450 kr á mann) Verð á einstaklingsherbergi 10.900 kr Kvöldmaturinn mun kosta 2900 kr á mann. Síðan verður skemmtun fram á nótt. Mikilvægt er að taka með sér útiföt og skó sem mega verða smá skítugir. Sundföt og skófla gætu líka komið að góðum notum. Skráning fer fram á þessum tengli: https://forms.gle/3EJHNXiRdkMwaXrE9 Comments are closed.
|