24/1/2023 Skuggaráðuneyti á morgunUngt framsóknarfólk fær reglulega tækifæri til þess að hitta ráðherra Framsóknar og kynnast störfum þeirra betur. Þau sem taka þátt í fundinum hafa tækifæri á að spyrja ráðherra spurninga, bæði formlegra og óformlegra.
Næsta Skuggaráðuneyti verður haldið á miðvikudaginn, 25. janúar, kl. 17 þar sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tekur á móti okkur. Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfund á Zoom, en hlekkur verður sendur á netföng þeirra sem hafa skráð sig fyrir fundinn. Mikilvægt er að öll sem ætla að taka þátt skrái sig fyrir kl. 18:00 þann 24. janúar og taki þar fram hvort þau ætli að taka þátt í fjarfundi eða mæta í persónu. Skráningarformið má finna hér: https://forms.gle/onxDH7wprWFkZo3J6 Ef þú hefur einhverjar spurningar getur þú alltaf haft samband í gegnum netfangið [email protected] eða skilaboð á Facebook síðunni okkar https://www.facebook.com/ungirframsoknarmenn Comments are closed.
|