Núverandi og fyrrum formenn Sambands ungra Framsóknarmanna. Samband ungra Framsóknarmanna var stofnað 13. júní 1938 og er því 85 ára í dag. Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) hélt upp á áfangan og útgáfu tölublaðsins Samtímans s.l. laugardag í félagssal Framsóknarmanna í Kópavogi. Var fjölmennt í Bæjarlindinni að samfagna þessum áfanga í starfi SUF. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður, Ásmundur Einar Daðason, ritari, Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks voru meðal þeirra sem létu sig ekki vanta á þessum tímamótum, auk fyrrverandi formanna SUF og annarra gesta.
Unnur Þöll Benediktsdóttir, formaður SUF, opnaði afmælis- og útgáfuhófið með ávarpi. Fór hún yfir hversu gefandi og þroskandi það væri að taka þátt í félagsstarfi SUF, flokksstarfið hafi verið sér dýrmætt og hún væri hvergi nærri hætt. Á þessum tímamótum gaf SUF út mjög veglegt og efnisríkt afmælisrit undir ritstjórn Gunnars Sæs Ragnarssonar. Hönnun og umbrot afmælisritsins var í höndum Díönu Ívu Gunnarsdóttur. Auk þeirra voru einnig Unnur Þöll Benediktsdóttir, Berglind Sunna Bragadóttir og Hafdís Lára Halldórsdóttir í ritstjórn blaðsins. Hægt er að lesa afmælisritið með því að ýta hér. Við viljum þakka öllum fyrir að samfagna með okkur og fyrir góðar móttökur á blaðinu okkar Samtíminn. Hér að neðan má sjá svipmyndir frá viðburðinum. Ljósmyndirnar tók Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi formaður SUF. Comments are closed.
|