3/11/2022 Þing Norðurlandaráðs æskunnar í HelsinkiLaugardaginn 29. október síðastliðinn var þing Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) sett í Helsinki. Gunnar Ásgrímsson, varaformaður, sótti þingið fyrir hönd Sambands ungra Framsóknarmanna.Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka á Íslandi höfðu fyrir ferðina lagt saman fram breytingartillögu á lögum UNR, sem myndi tryggja að öll skjöl á þingum UNR þurfi að þýða á íslensku og finnsku auk skandinavísku. Hingað til hafa Íslendingar, sem voru fljótir að gleyma grunnskóladönskunni, þurft að reiða sig á aðstoð Google translate. Þær ungliðahreyfingar sem lögðu breytinguna fram, auk ungra Framsóknarmanna, voru ungt Jafnaðarfólk, ungir Sjálfstæðismenn og ung Vinstri græn.
Fyrir ári síðan, á þingi UNR í Kaupmannahöfn, hafði ungt Jafnaðarfólk lagt sömu lagabreytingu fram. Þá hlaut hún ekki meirihluta atkvæða, en 2/3 atkvæða þarf til lagabreytinga. Vangaveltur um kostnaðinn voru grundvöllur höfnunarinnar. Eftir þingið ákvað þó nýkjörin forsætisnefnd að hafa prufuverkefni í Helsinki þar sem að hluti af ályktunum sem bárust myndu vera þýdd auk þess að hægt var að senda inn ályktanir á íslensku og finnsku. Þegar lagabreytingar voru til umfjöllunar á þingfundinum fór Gunnar Ásgrímsson með framsögu og las m.a. stuðningsbréf frá Lilju Alfreðsdóttur, menningarmálaráðherra. Íslendingar fóru svo hver á eftir öðrum að tala fyrir mikilvægi þessa jafnréttismáls. Einnig fékkst mikill stuðningur frá Færeyjingum og Norðmönnum, sem við Íslendingar vorum ánægð að sjá. Ekki mátti sjá að margir þorðu að koma upp í pontu og tala gegn þessu mikilvæga jafnréttismáli, en eftir mikla og góða umræðu var svo loks kosið. Breytingin samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta og mun því vera skylda að þinggögn verði þýdd á öllum framtíðar þingum Norðurlandaráðs æskunnar. Í kjölfarið var fagnað að siði heimamanna og farið á karaoke-bar, en þar steig drengjakór Íslandsdeildar á svið. Á sunnudeginum voru teknar fyrir ályktanir sem vinnuhópar höfðu unnið að á laugardeginum. Þar var m.a. tekin umræða um sjálfnægtastig í matvælaframleiðslu. Fulltrúi okkar gat ekki annað en stigið í pontu og talað um mikilvægi þessa góða Framsóknarmáls. Eftir miklar umræður var þinginu slitið og þreytt ungmenning fengu að halda heim á leið eða upp á hótel. Hér má svo sjá nokkrar myndir frá þinginu, meðal annars Íslendingamynd og miðjuflokkamynd. 18/10/2022 HúsaleigubæturUngt Framsóknarfólk vill að húsaleigubætur séu tengdar þróun vísitölu neysluverðs. Húsaleiga er
gjarnan vísitölutengd og því eðlilegt að þetta tvennt haldist í hendur. Með því skilyrði að takmarkanir verði settar á hækkun leiguverðs til að koma í veg fyrir að hækkun húsaleigubóta leiði af sér hækkun leiguverðs. Samþykkt á fundi stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna 5. október 2022. 17/10/2022 Miðstjórnarfundur 2022![]() Hvað er miðstjórnarfundur? Miðstjórn fundar tvisvar á ári, að vori og hausti. Venjan hefur verið að vorfundurinn sé á höfuðborgarsvæðinu og haustfundurinn utan höfuðborgarsvæðisins. Á haustin er rætt um félagsstarf flokksins á komandi starfsári og kosið er í nefndir miðstjórnar sem eru málefnanefnd og fræðslu- og kynningarnefnd. Um 200 fulltrúar frá kjördæmissamböndum eiga aðild að miðstjórn auk hóps annara, t.d. núverandi og fyrrum þingmenn og ráðherrar. https://framsokn.is/starfid/midstjorn/ Kjördæmisþing kjósa fulltrúa sína í miðstjórn á kjördæmisþingum sem haldin eru í október og nóvember. Til þess að óska þess að komast í miðstjórn mælum við með því að þú heyrir í formanni eða öðrum stjórnarmanni í kjördæmissambandi þínu og látir vita af áhuga. Þriðjungur miðstjórnarmanna skal samkvæmt lögum Framsóknar vera ungur (35 og yngri). Nefndir miðstjórnar Málefnanefnd Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu Framsóknarflokksins. Fræðslu- og kynningarnefnd Hana skipa formaður sem framkvæmdastjórn skipar og fjórir meðstjórnendur. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja og hafa umsjón með framkvæmd kynningar- og fræðslumála Framsóknarflokksins. Miðstjórnarfundur á Ísafirði 2022 Nú styttist í haustfund miðstjórnar og verður fundurinn að þessu sinni haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði helgina 11-13. nóvember. Dagskrá Föstudagur 11. nóv Ungir ætla að hittast á Dokkan Brugghús um kvöldið. Laugardagur 12. nóv Fundurinn byrjar klukkan 10 um morgunin er fram eftir degi. Um kvöldið verður kvöldverðarhóf. Sunnudagur 13. nóv Fundurinn heldur áfram fram yfir hádegi. Rúta Fyrirhugað er að fara saman í rútu frá höfuðborgarsvæðinu, enn þó er óljóst hvernig fyrirkomulagið verður. Ef að það verður ekki rúta munum við reyna að sameinast í bíla. Gisting Framsókn hefur fengið tilboð í tvö hótel á svæðinu og Ung Framsókn hefur fengið tilboð hjá gistiheimilinu Mánagisting, sem er hagstæðari kostur fyrir þau sem hafa áhuga, (upplýsingar um gistingu frá Framsókn má finna að neðan), Mánagisting Gisting í 2 manna herbergi kostar 19.373kr fyrir 2 nætur (9.686kr á mann ef herbergi er deilt með öðrum) Gisting í 3 manna herbergi kostar 25.357kr fyrir 2 nætur (8.453kr ef herbergi er deilt með öðrum) Því miður voru engin laus 1 manns herbergi en hægt er að panta 2 manna herbergi og gista einsamall í því. Þá þarf viðkomandi að greiða fullt verð fyrir herbergið. Þau sem hafa áhuga á að vera hjá Mánagistingu með ungum skulu skrá sig í gegnum hlekk hér að neðan en ekki í gegnum gistiheimilið sjálft. Skráning: https://forms.gle/R3iXJkt3wemHEtyr9 Hér má finna upplýsingar frá flokknum Upplýsingar um gistingu: Hægt verður að fá gistingu á Hótel Ísafirði og Holt Inn. Hægt er að panta gistingu á Hótel Ísafirði með því að senda tölvupóst á lobby@hotelisafjordur.is kóðinn er „fundur Framsóknar“. Til að bóka á Holt Inn senda tölvupóst á holtinn@holtinn.is „Framsókn“. Hótel Ísafjörður:
suf@suf.is eða skilaboð á samfélagsmiðlum @ungframsokn / facebook: Samband ungra Framsóknarmanna. 28/8/2022 Ályktanir 2022![]() Eftirfarandi eru þær ályktanir sem samþykktar voru á 47. sambandsþingi SUF 1. Ungt Framsóknarfólk vill að fæðingarstyrkur námsmanna verði hækkaður til þess að gera aðstæður námsmanna betri. 2. Ungt Framsóknarfólk vill að skimanir fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi verði framkvæmdar reglubundið með sama hætti og þegar er gert fyrir brjósta- og leghálskrabbameini. Þessi tegund krabbameina er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina á Íslandi og ein þriggja tegunda krabbameina (til viðbótar við brjósta- og leghálskrabbamein) sem alþjóða stofnanir mæla með að skimað sé fyrir. 3. Ungt Framsóknarfólk styður tillögur um að lögð verið fram reglugerð um að sveitarfélög taki við ákveðnum fjölda flóttafólks í hlutfalli við íbúafjölda og getu innviða hvers þeirra. Ísland á að veita einstaklingum í leit að alþjóðlegri vernd öruggt skjól. Þá dugar ekki til að skjóta einungis þaki yfir flóttafólk á afmörkuðum svæðum heldur verður að huga að samlögun þess og samfélagsins. Huga verður að því að dreifa búsetu flóttafólks innan sveitarfélaga og milli þeirra og hlúa að innviðum s.s. heilbrigðisþjónustu, sálfræðiþjónustu, leik- og grunnskólum, löggæslu og sjúkraflutningum svo samfélögin geti tekið vel á móti einstaklingum sem leita hingað skjóls og veitt þeim viðeigandi þjónustu. 4. Ungt Framsóknarfólk vill aukið fjármagn til forvarna gegn sjálfsvígum og stuðning til aðstandenda þeirra sem falla fyrir eigin hendi. 5. Ungt Framsóknarfólk telur brýnt að lækka fasteignaskatta til að bregðast við hækkandi fasteignamati og fasteignagjöldum sem auka greiðslubyrði heimilanna til muna. 6. Ungt Framsóknarfólk vill að skattþrep tekjuskatts verði endurskoðuð með reglubundnum hætti í samræmi við launaþróun, sem léttir skattbyrði lág- og meðaltekjufólks. 7. Ungt Framsóknarfólk telur að nú þegar stríð geisar í Evrópu hafi fæðuöryggi aldrei verið jafn mikilvægt. Stjórnvöld þurfa að tryggja fæðu- og matvælaöryggi með innlendri matvælaframleiðslu. 8. Ungt Framsóknarfólk telur mikilvægt að sveitafélöginn tryggi máltíðir á skólatíma og að aðgengi barna á leik- og grunnskólastigi sé niðurgreitt í samræmi við tekjur heimilanna. 9. Ungt Framsóknarfólk hvetur til forgangsröðunar í gangnagerð og vegaframkvæmdum um land allt. Ýmsir vegakaflar um landið reynast hreint og beint hættulegir. 10. Ungt Framsóknarfólk hvetur sveitarfélög og vegagerðina til þess að endurskoða snjómokstur á sínu svæði til að bæta þjónustu og auka samstarf. 11. Ungt Framsóknarfólk telur að 1. desember, Fullveldisdagurinn verði gerður að opinberum frídegi. Fyrsti desember er í dag fánadagur, það var á þeim degi sem að Sambandslögin svokölluðu gengu í gildi. Sambandslögin voru vafalítið stærsta skrefið í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, en í þeim fólst að Danmörk viðurkenndi að Ísland væri frjálst og fullvalda ríki. 12. Ungt Framsóknarfólk leggst gegn banni á bragðbættum nikótínpúðum og rafrettum. Slíkar vörur reynast mörgum hjálplegar við að hætta tóbaksnotkun og reynslan hefur sýnt að forvarnarstarf er öflugasta viðspyrnan gegn því að ungt fólk hefji notkun á nikótín- eða tóbaksvörum. Hvetjum við stjórnvöld því til efldrar forvarnarstarfsemi framar boðum og bönnum. 13. Ungt Framsóknarfólk vill efla og styrkja iðnnám um allt land. Til þess að bæta aðgengi, aðstöðu og fjölbreytileika námsins. Auka þarf framboð til að mæta þeirri gífurlegri eftirspurn eftir iðnnámi sem hefur tekist að mynda á síðustu árum. 14. Ungt Framsóknarfólk vill að tekin verði upp þrepaskiptur fjármagnstekjuskattur. |