11/6/2018 80 ára afmæliSamband ungra Framsóknarmanna (SUF) fagnar 80 ára starfsafmæli þann 13. júní n.k. en í tilefni afmælisins var blásið til hátíðar í Menntaskólanum að Laugarvatni um nýliðna helgi. Fjölmenni sótti viðburðinn enda ekki á hverjum degi sem að ungliðahreyfing nær jafn háum starfsaldri. Meðal gesta voru þingmenn, ráðherrar, fyrrum formenn SUF og fulltrúar Nordiska Centerungdomens Förbund, regnhlífahreyfingar ungra miðjumanna á Norðurlöndum.
SUF var stofnað þann 13. Júní 1938 í Héraðskólanum á Laugarvatni, þar var kjörin fyrsta stjórn sambandsins skipuð fulltrúum úr öllum kjördæmum landsins. Í gegnum árin hefur sambandið komið víða við og margir fyrrum formenn þess síðar orðið þingmenn, ráðherrar eða gegnt öðrum ábyrgðarstöðum í samfélaginu. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokkinn var meðal þeirra sem ávarpaði samkomuna á Laugarvatni og þá tók einnig til máls Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og mennta- og menningarmálaráðherra. Bæði þökkuðu SUF ómældan stuðning í síðustu kosningabaráttum og vinnusemina sem býr í unga fólki flokksins. Emma Tcheng, ritari NCF bar þá góðar kveðjur frá norrænum systursamtökum og Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennaliðs ÍA talaði um liðsheildina og mikilvægi þess að setja sér markmið til að ná árangri. Auk hátíðardagskrár í Menntaskólanum að Laugarvatni var svokölluð Steingrímsþúfa heimsótt þar sem að SUF tók flag í fóstur fyrir 30 árum síðan en þar stendur nú blómlegur lundur. Gróðursett var tré til merkis um áframhaldandi vöxt í starfi sambandsins og ávarpaði Gissur Pétursson, fyrrum formaður SUF, viðstadda og reifaði sögu þúfunnar. Við þökkum kærlega öllum sem glöddust með okkur í tilefnia starfsafmælisins! |