SUF
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
Search by typing & pressing enter

YOUR CART

13/6/2023

Samband ungra Framsóknarmanna fagnaði 85 ára afmæli

Picture
Núverandi og fyrrum formenn Sambands ungra Framsóknarmanna.
Samband ungra Framsóknarmanna var stofnað 13. júní 1938 og er því 85 ára í dag. Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) hélt upp á áfangan og útgáfu tölublaðsins Samtímans s.l. laugardag í félagssal Framsóknarmanna í Kópavogi. Var fjölmennt í Bæjarlindinni að samfagna þessum áfanga í starfi SUF. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður, Ásmundur Einar Daðason, ritari, Ingibjörg Isaksen, formaður þingflokks voru meðal þeirra sem létu sig ekki vanta á þessum tímamótum, auk fyrrverandi formanna SUF og annarra gesta.

Unnur Þöll Benediktsdóttir, formaður SUF, opnaði afmælis- og útgáfuhófið með ávarpi. Fór hún yfir hversu gefandi og þroskandi það væri að taka þátt í félagsstarfi SUF, flokksstarfið hafi verið sér dýrmætt og hún væri hvergi nærri hætt.

Á þessum tímamótum gaf SUF út mjög veglegt og efnisríkt afmælisrit undir ritstjórn Gunnars Sæs Ragnarssonar. Hönnun og umbrot afmælisritsins var í höndum Díönu Ívu Gunnarsdóttur. Auk þeirra voru einnig Unnur Þöll Benediktsdóttir, Berglind Sunna Bragadóttir og Hafdís Lára Halldórsdóttir í ritstjórn blaðsins.

Hægt er að lesa afmælisritið með því að ýta
hér.

Við viljum þakka öllum fyrir að samfagna með okkur og fyrir góðar móttökur á blaðinu okkar Samtíminn. Hér að neðan má sjá svipmyndir frá viðburðinum. Ljósmyndirnar tók Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi formaður SUF.

Comments are closed.

Vilt þú taka þátt í starfi Framsóknar og hafa áhrif?
Skráðu þig í flokkinn á framsokn.is

Samband ungra Framsóknarmanna

[email protected]