Stefna SUF
Grundvallarstefna
Samband ungra Framsóknarmanna er frjálslynd samvinnu- og félagshyggjuhreyfing á miðju stjórnmálanna. Sambandið leggur áherslu á að finna bestu lausnina hverju sinni sem er til þess fallin að bæta íslenskt samfélag. Meginstef í stefnu ungra Framsóknarmanna er að allir hafi jöfn tækifæri í lífinu óháð efnahag og búsetu. Stjórnvöld eiga að tryggja hagfelld skilyrði fyrir blómlegar byggðir hringinn í kringum landið.
Umhverfismál
Ungt Framsóknarfólk vill tryggja jafnvægi milli verndunar og nýtingar náttúruauðlinda landsins og stuðla að sjálfbærri auðlindanýtingu.
Ísland ætti að vera leiðandi afl í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Mikilvægt er að horft sé til nýrra leiða, stuðningur við nýsköpun aukinn ásamt því að hagrænum hvötum sé beitt til þess að draga úr losun.
Ungt Framsóknarfólk vill stuðla að sjálfbærum neysluvenjum og hamla notkun efna sem eru skaðleg fyrir umhverfið.

Velferðarmál
Allir eiga að hafa jafnan rétt á heilbrigðisþjónustu óháð efnahag, búsetu og aldri. Ein af grunnstoðum íslensks samfélags er heilbrigðiskerfið og sú þjónusta sem Landspítalinn veitir. Mikilvægt er að Landspítali sé örugg, hagkvæm og vel rekin eining. Í þessu samhengi ber að nefna að enginn ætti að þurfa að neita sér né vera neitað um heilbrigðisþjónustu.
Geðheilbrigðisþjónusta hefur setið á hakanum í of langan tíma. Mikilvægt er að ungt fólk hafi greiðan aðgang að sálfræðiaðstoð og að hún heyri undir almenna heilbrigðisþjónustu.
Ungt Framsóknarfólk leggur áherslu á mikilvægi þess að skýrri stefnu um lýðheilsu á Íslandi sé haldið til haga. Gott líkamlegt og andlegt heilbrigði einstaklinga er öflug forvörn til framtíðar og lækkar kostnað heilbrigðiskerfisins til lengri tíma litið. Efla þarf forvarnir og fræðslu til ungs fólks um skaðsemi vímuefna. Taka skal tillit til forvarnarmála við gerð heilbrigðisstefnu fyrir Ísland.

Menntamál
Menntun er grunnurinn að velgengni þjóðar. Ungt Framsóknarfólk vill tryggja aðgengi allra að fjölbreyttu námi og námsaðferðum. Landsmenn eiga að hafa kost á því að sækja sér menntun í sinni heimabyggð.
Kennarastarfið á að vera eftirsóknarverður atvinnumöguleiki meðal ungs fólks þar sem ábyrgð er metin að verðleikum. Ísland á að vera meðal efstu þjóða OECD ríkjanna þegar kemur að lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum.
Mikilvægur þáttur í að tryggja aðgengi að námi er að námsmenn hafi möguleika á fjármögnun til framfærslu. Ungt Framsóknarfólk vill að stutt sé við námsmenn sem þurfa að flytjast búferlum til þess að stunda nám.

Sjávarútvegsmál
Ungt Framsóknarfólk vill að fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands sé sjálfbært á öllum sviðum. Stuðlað sé að líffræðilegri sjálfbærni með því að tryggja sjálfbærar veiðar þar sem veiðimagn byggist á vísindalegri ráðgjöf. Með aukinni nýsköpun sé stuðlað að aukinni verðmætasköpun, efnahagslegum ávinningi og þannig efnahagslegri sjálfbærni greinarinnar. Þá á kerfið að vera atvinnuskapandi og styðja við þau byggðalög sem reiða sig á atvinnugreinar tengdum sjávarútvegi til að stuðla að stöðuleika byggða.
Landbúnaðarmál
Ungt Framsóknarfólk vill standa vörð um íslenskan landbúnað. Mikilvægt er að stuðla að endurnýjun í stéttinni og að auðvelda ungu fólki að hefja búskap auk þess að skoða mætti skattaívilnanir til að styðja við nýsköpun í landbúnaði. Íslendingar ættu að vera sjálfum sér nægir og mett markaðinn með eigin framleiðslu bæði þegar kemur að grænmeti og kjöti. Matvælaöryggi er mikilvægt landi og þjóð og að því ætti að stuðla.
Byggða- og samgöngumál
Ungt Framsóknarfólk vill stuðla að fjölbreyttri uppbyggingu landsins. Mikilvægt er að innviðir séu styrktir um allt land. Að mati ungs Framsóknarfólks er innanlandsflug hluti af almenningssamgöngum. Eins ítrekar ungt Framsóknarfólk mikilvægi þess að flugvöllur og aðrar samgöngur verði greiðar að landspítala.
Ráðast þarf í aðgerðir í brothættum byggðum. Tryggja þarf atvinnutækifæri og nýsköpun á landsbyggðinni. Ungt Framsóknarfólk vill að hvatar séu til staðar sem stuðla að aukinni atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni og flutningi ungs fólks út á land.

Jafnréttismál
Ungt Framsóknarfólk telur að með því að stuðla að jafnrétti er verið að leggja grunn að velferð einstaklinga, fjölskyldna, atvinnulífs og samfélagsins alls. Ungt Framsóknarfólk metur svo að lýðræðislegt samfélag þrífst best ef allir eru jafnir fyrir lögum án tillits til aldurs, kynferðis, kynhneigðar, kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, efnahags, búsetu, ætternis, fötlunar, sjúkdóma eða annarrar stöðu. Til að jafnrétti nái fram að ganga verða öllum að standa til boða sömu tækifæri til áhrifa, virðingar og þátttöku í samfélaginu.
Velkomin á heimasíðu SUF
SUF eru regnhlífasamtök FUF-félaga um allt land og gegna mikilvægu hlutverki í starfi Framsóknarflokksins.
suf@suf.is
SUF eru regnhlífasamtök FUF-félaga um allt land og gegna mikilvægu hlutverki í starfi Framsóknarflokksins.
suf@suf.is