SUF
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
Search by typing & pressing enter

YOUR CART

5/9/2023

Gunnar Ásgrímsson er nýr formaður SUF

Picture
​48. Sambandsþing Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) var haldið á Sauðárkróki helgina 2. - 3. september. Þar sat ungt Framsóknarfólk og vann öflugt málefnastarf ásamt því að kjósa sér nýja stjórn og nýjan formann, Gunnar Ásgrímsson. Fráfarandi formaður Unnur Þöll Benediktsdóttir gaf ekki kost á sér áfram eftir tveggja ára formennsku.

Gunnar, nýr formaður, er 23 ára Skagfirðingur sem stundar nám í kennslufræði við Háskóla íslands og starfar sem stuðningsfulltrúi í Háteigsskóla. Hann hefur verið virkur í félagsstarfi flokksins og innan sambandsins síðan 2018, og síðustu þrjú árin setið í framkvæmdastjórn SUF, fyrst sem ritari en síðustu tvö ár sem varaformaður undir formennsku fráfarandi formanns, Unnar Þallar.

“Ég hlakka mikið til komandi starfsárs, við erum með flotta stjórn sem ég hef mikla trú á, en það eru stór verkefni framundan í vetur. Það verður flokksþing hjá Framsókn í vor þar sem við í SUF munum svo sannarlega láta í okkur heyra, eins og á öðrum viðburðum flokksins síðustu ár. Helstu verkefnin munu því tengjast málefnastarfinu okkar en einnig má búast við fjölbreyttu viðburðastarfi hjá okkur. Það hefur heppnast vel að halda svokölluð Skuggaráðuneyti, þar sem ungt Framsóknarfólk fær að spjalla við ráðherrana okkar, en einnig þeir Örfundir sem við höfum átt með þingmönnum og sveitarstjórnarfólki um hin ýmsu mál. Má því búast við miklu þetta ár og hvet ég því áhugasöm um að mæta á viðburði hjá okkur í vetur.”

Mörg deilu- og hitamál voru rædd á þinginu, þar á meðal útlendingamál, samgöngusáttmáli, heilbrigðismál, menntamál og hvalveiðar. Allar ályktanir þingsins verða birtar á samfélagsmiðlum SUF og hér á vefnum á næstu dögum.

Einnig var kosið í nýja stjórn og er hún eftirfarandi:

Ágúst Guðjónsson
Berglind Sunna Bragadóttir
Díana Íva Gunnarsdóttir
Hafdís Lára Halldórsdóttir
Heiðdís Geirsdóttir
Hrafn Splidt Þorvaldsson
Inga Berta Bergsdóttir
Karel Bergmann Gunnarsson
Mikael Jens Halldórsson
Ólöf Rún Pétursdóttir
Skúli Bragi Geirdal
Urður Björg Gísladóttir

Comments are closed.

Vilt þú taka þátt í starfi Framsóknar og hafa áhrif?
Skráðu þig í flokkinn á framsokn.is

Samband ungra Framsóknarmanna

[email protected]