Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
24 / 11 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Minkurinn í hænsnakofanum

Þingmaður síðustu viku er Helga Sigrún Harðardóttir. Það hefur verið gaman að fylgjast með henni í þinginu síðan hún tók við þingmennsku við erfiðar aðstæður og með sama áframhaldi verður hún sá þingmaður sem pólitískir andstæðingar hennar óttast hvað mest.

Einn var sá ráðherra sem ætlaði sér að hafa það náðugt í kreppunni. Á meðan spjótin beindust að öðrum ráðherrum væru minni líkur á að nafn hans yrði dregið inn í umræðuna um slæma frammistöðu stjórnarinnar. „Fyrst nafnið mitt er ekki nefnt eru minni líkur á að fólk tengi mig við kreppuna þegar kemur að kosningum“ hugsaði heilbrigðisráðherrann. Þá kom Helga Sigrún til sögunnar og dró hann upp úr holunni  sem hann hafði komið sér fyrir í.

Það er áhyggjuefni ef Sjálfstæðisflokkurinn með dyggum stuðningi Samfylkingarinnar ætlar að hefjast handa við að einkavæða í heilbrigðiskerfinu á meðan styrinn stendur um hvernig bjarga eigi þjóðinni út úr þeim ógöngum sem hún er komin í. Það má ekki verða þannig að í skugga kreppunnar verði blárri hönd auðvaldsins hleypt að nýjum kjötkötlum, nefnilega heilsu okkar.  

Það er ekki að ástæðulausu að maður óttist að nú eigi að „spara“ í heilbrigðiskerfinu með því að koma ákveðnum hlutum þess í hendur einkaaðila. Þannig gaf Geir H. Haarde það til kynna þegar núverandi ríkisstjórn tók til starfa að Samfylkingin væri tilbúin að ráðast í verkefni sem Framsóknarflokkurinn var ekki tilbúinn að samþykkja.
Það hefur ríkt sátt um áratugaskeið á Íslandi að heilbrigðisþjónusta eigi að standa öllum til boða þar sem þarfir notenda eru í fyrirrúmi. Tvískipt kerfi þar sem fólki er mismunað eftir efnahag og félagslegri stöðu mun ýta undir aukinn ójöfnuð og einangrun ákveðinna hópa i samfélaginu. Kerfi sem hefur gróðahyggju að leiðarljósi er ekki sú framtíðarsýn sem ungt framsóknarfólk kallar eftir. Þvert á móti er það einlæg ósk okkar að velferðarkerfið komi áfram til með að lúta lögmálum samhjálpar og samvinnu, kærleika og umhyggju.  

Ég óttast að það hafi verið mikil mistök af hálfu Samfylkingarinnar að hleypa Sjálfstæðismönnum til valda í heilbrigðiráðuneytinu. Það hafi verið líkt og að hleypa minknum inn í hænsnakofann. Vonandi hafa þingmenn stjórnarmeirihlutans nú bein í nefinu til þess að koma í veg fyrir að velferðarkerfið verði fyrir barðinu á nýfrjálshyggjunni.

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
 
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is