Forsíđa  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
08 / 09 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Hvers vegna er ekki samiđ viđ ljósmćđur?

Deila ljósmćđra og ríkisins virđist vera í hnút. Ekkert hefur veriđ fundađ um helgina og nćsti fundur í deilunni er ekki bođađur fyrr en á morgun. Ég er miđur mín yfir ţví ađ til verkfalls hafi ţurft ađ koma hjá ljósmćđrum. Eitt af ţví fáa sem ég hélt ađ stćđi skýrt og óteygjanlegt í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er ađ bćta ćtti sérstaklega kjör kvenna hjá hinu opinbera og ţeirra stétta ţar sem konur eru í miklum meirihluta. Nú er komiđ í ljós ađ ég hafđi rangt fyrir mér. Orđin í stjórnarsáttmálanum eru innantóm.  

Ljósmćđur hafa fundiđ fyrir stuđningi ţjóđarinnar í ţeirri kjarabaráttu sem ţćr eiga í um ţessar mundir. Óskandi vćri ađ ţćr fengju stuđning frá ríkisstjórninni sem ábyrgđ ber á launamálum ţeirra. Einstaka ţingmenn stjórnarflokkanna hafa reyndar gefiđ út stuđningsyfirlýsingu viđ ţćr en á međan stuđningurinn er í orđi en ekki á borđi er lítiđ ađ marka hann.  

Eitt af mikilvćgustu verkefnum ríkisstjórnarinnar er ađ vinna markvisst gegn kynbundnum vinnumarkađi og endurmeta kjör kvenna hjá hinu opinbera. Árangur ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum hingađ til er ekki til ţess ađ hreykja sér af. Segja má ađ eini áţreifanlegi árangurinn sé ađ hafa lagt fram og fengiđ samţykkt ný jafnréttislög sem unnin voru á tímum framsóknarmanna í félagsmálaráđuneytinu.  

Sé hćgt ađ tala um einhverja stétt sem kvennastétt eru ţađ ljósmćđur. Stéttin samanstendur eingöngu af konum og starfar ađ mestu fyrir konur ţó vissulega hafi ţćr tekiđ á móti okkur karlmönnunum og koma til međ ađ taka á móti börnunum okkar. Á Íslandi voru reyndar starfandi ljósfeđur til 1933 en síđan ţá hafa karlmenn ekki sótt í námiđ. Ađ ţví leyti eru Íslendingar eftirbátar nágrannaţjóđa sinna ţar sem karlmenn sinna störfum ljósmćđra. Í Svíţjóđ starfa t.d. um 50 ljósfeđur á fćđingardeildum sjúkrahúsa. En burtséđ frá ţví hvort stéttin sé kvennastétt eđur ei ţá er erfitt ađ sjá hvers vegna stéttin hefur ekki fengiđ leiđréttingu á kjörum sínum. Ríkiđ virđist vera meta nám ţeirra sem fjögurra ára háskólanám ţegar ţađ er í raun og veru sex ára nám.  

Í fréttum Sjónvarpsins í síđustu viku var áhugverđur samanburđur á launum hjúkrunarfrćđings og ljósmóđur. Segjum sem svo ađ tveir hjúkrunarfrćđingar starfi á sćngurkvennagangi Landspítala. Međ tveggja ára starfsreynslu hafa ţeir hvor um sig 261.230 krónur í grunnlaun á mánuđi. Nú ákveđur annar ađ fara í ljósmćđranám sem tekur tvö ár og snýr aftur til starfa međ 274.294 krónur í grunnlaun. Sá sem hélt áfram ađ starfa sem hjúkrunarfrćđingur fengi eftir ţessi tvö ár 299.807 krónur.

Ljósmćđur eiga svo sannarlega skiliđ ađ fá laun sín leiđrétt enda hafa fáar stéttir lćgri laun innan Bandalags háskólamanna. Ţađ er einnig nauđsynlegt upp á nýliđun í stéttinni ađ gera ţar sem 44% ljósmćđra fara á eftirlaun á nćstu tíu árum. Viđ eigum ađ koma í veg fyrir mögulegan skort á ljósmćđrum í framtíđinni í dag en ekki bíđa eftir í óefni sé komiđ.

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformađur SUF

Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is