Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
26 / 08 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Borganesræða Guðna Ágústssonar

Það var fullt út úr dyrum í Félagsbæ í Borgarnesi í gærkvöldi þar sem Guðni Ágústsson ræddi stjórnmálaástandið og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. Fundurinn var fyrsti fundur Guðna í fundarherferð hans um landið undir yfirskriftinni „Tími aðgerða í efnahagsmálum er runninn upp“. Ekki er annað hægt að segja en að Guðni byrji herferðina vel og er rétt að hvetja þá sem kost eiga á að mæta á þá fundi sem boðað hefur verið til að gera það.  

Guðni hefur sýnt það á síðustu árum að þar er á ferðinni öflugur stjórnmálamaður sem vel er treystandi til þess að leiða Íslendinga í gegn um þann öldudal sem íslenskt efnahagslíf er í um þessar mundir. Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa lagt í þá herferð að gera lítið úr þekkingu hans á efnahagsmálum. Ekki má taka mark á þeim spuna. Þeir sem efast um þekkingu hans á sviði efnahagsmála þurfa að hafa í huga að því fylgir gífurlega mikil efnahagsleg ábyrgð að stýra ráðuneyti. Guðni nýtur þess að hafa gegnt embætti ráðherra í átta ár auk þess sem hann sat í bankaráði Búnaðarbankans á sínum tíma og var m.a. formaður ráðsins í þrjú ár.  

Geir H. Haarde miklaðist á dögunum að aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar. Hann sagði aðgerðarleysisstefnuna hafa skilað tilætluðum árangri. Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar hefur skilað sér í því að í dag búa Íslendingar við hæstu verðbólgu í 20 ár. Á ársgrundvelli mælist hún 14-15%. Á þriggja mánaða tímabili mælist hún yfir 30%. Gengi krónunnar hefur fallið um 40% frá áramótum. Stýrivextir Seðlabankans eru þeir hæstu á Vesturlöndum eða 15,5%. Í 20 ár hafa útlánavextir bankanna ekki verið hærri. Skuldug heimili og fyrirtæki hafa nú þegar orðið fyrir miklum bússifjum vegna aðgerðarleysisins og enn á eftir að þrengja að. Búast má við því að á næstu mánuðum eigi atvinnuleysi eftir að vaxa og gjaldþrot komi til með að aukast.  

Guðni hefur leitt gagnrýni framsóknarmanna á aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar og hefur meginþorri hagfræðinga sem og greiningadeildir bankanna verið honum sammála um þær aðgerðir sem hann hefur beitt sér fyrir. Og hverjar eru svo þessar aðgerðir sem framsóknarmenn hafa lagt til?

Í fyrsta lagi þarf að efla gjaldeyrisforðann verulega. Í vor bauðst ríkisstjórninni erlent lán með 1% álagi en ekki var gengið að því. Lán á slíkum kjörum býðst ekki í dag. kostnaður við slíka lántöku yrði talsverður en vel væri hægt að semja við bankakerfið um þátttöku í þeim kostnaði. Þá ber að hafa í huga að lendi einn íslenskur banki í greiðsluerfiðleikum fylgir því margfaldur kostnaður fyrir ríkissjóð, aðra banka og atvinnulífið í formi versnandi lánskjara og minnkandi trausts á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði.  

Tafarlaust þarf að minnka stýrivexti Seðlabankans. Háir stýrivextir geta á næstu mánuðum stuðlað að lækkandi gengi krónunnar vegna gjaldþrota einstaklinga og fyrirtækja.  

Opinberar álögur ber að minnka til þess að létta gangverk atvinnulífsins. Framsóknarmenn hafa helst horft til þess að lækka álögur á neysluvörur líkt og eldsneyti og matvæli.  

Loks þarf að auka opinberar framkvæmdir án þess að þenja ríkisbáknið út. Upplagt væri að ráðast í arðvænlegar stórframkvæmdir í vegamálum o.fl. sem dregið gæti úr áföllum í byggingaiðnaði. Slíkar framkvæmdir gætu minnkað líkurnar á stórfelldu atvinnuleysi.  

Ræða Guðna var löng og efnismikil. Ég hef hér einungis fjallað í stuttu máli um áhyggjur hans og framsóknarmanna af duglausri ríkisstjórn sem virðist skorta vilja, kjark og metnað til að takast á við þann efnahagsvanda sem blasir við. Í ræðunni kom hann m.a. inn á fyrirhugaðar breytingar á Íbúðalánasjóði, umhverfi fjármálastofnanna, samgöngumál, landbúnaðarmál, menntamál og nýjan meirihluta í Reykjavík svo aðeins eitthvað sé nefnt.  

Eins og fyrr segir var Guðni í Borgarnesi í gær. Í kvöld, þriðjudaginn 26. ágúst verður hann í Ljósheimum í Skagafirði, á morgun í Skipasmíðastöðinni á Húsavík og á fimmtudag í Austrasalnum á Egilsstöðum. Þá mætir Guðni í Þingborg í Hraungerðishreppi n.k. mánudag. Allir fundirnir hefjast klukkan 20:30 og eru þeir öllum opnir. Herferð Guðna lýkur þó ekki þar með heldur mun hann funda á fleiri stöðum á næstu vikum, m.a. á höfuðborgarsvæðinu.  

Eggert Sólberg Jónsson

Varformaður SUF

Tillögur þingflokks framsóknarmanna vegna ástands efnahagsmála.
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is