29 / 08 / 2007 | Eggert Sólberg Jónsson
Hamingjuóskir til Borgfirðinga
Ef þið tókuð ekki eftir því þá var Menntaskóli Borgarfjarðar settur
í fyrsta sinn 22. ágúst s.l.. Fram til þessa hafa nemendur sem ljúka
grunnskólum á svæðinu þurft að sækja annað í framhaldsskóla, flestir á
Akranes en margir farið til Reykjavíkur. Þeir sem fóru suður snéru
margir hverjir ekki aftur heim. Það vantaði því tilfinnanlega
framhaldsskóla til að tengja saman það menntagap sem skapaðist milli
grunn- og háskólamenntunar á svæðinu.
Það hefur verið mjög gaman að fylgjast með uppbyggingu
þekkingarstofnanna í Borgarfirði á síðustu árum. Um er að ræða
sannkallaða stóriðju Borgfirðinga. Viðskiptaháskólinn á Bifröst og
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri eru hvort tveggja skólar í örum
vexti. Þriðja fræðastofnunin á svæðinu er Snorrastofa í Reykholti sem
sinnir mikilvægu hlutverki í miðaldarannsóknum. Í þennan hóp bætist svo
Menntaskóli Borgarfjarðar auk fjölda smærri stofnanna og fyrirtækja sem
vaxa og dafna í tengslum við skólana.
Þann 21. september 2005 var umræðan um framhaldsskóla í Borgarnesi
enn á umræðustigi. Þann dag hélt ungt framsóknarfólk í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu aðalfund sinn þar sem samþykkt var eftirfarandi
ályktun sem fylgt hefur verið eftir þar sem þess hefur verið þörf, á
kjördæmisþingum, flokksþingum og í samtölum við ráðamenn.
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu fagnar þeirri hugmynd rektora Landbúnaðarháskóla
Íslands og Viðskiptaháskólans á Bifröst að stofnaður verði
framhaldsskóli í Borgarnesi. Það er í fullu samræmi við stefnu
Framsóknarflokksins að efla nám á framhaldsskólastigi í landinu. Gæta
verður þess að skólagjöldum verði stillt í hóf og þau verði ekki hærri
en í öðrum sambærilegum menntastofnunum.
Sjálfur er ég einn af c.a. 150 stofnfjárhöfum í Menntaskóla
Borgarfjarðar. Ég á að vísu ekki stóran hlut en sýni þannig táknrænan
stuðning við uppbyggingu hins nýja skóla. Þeir sem hafa áhuga á að
gerast hluthafar í skólanum er bent á heimasíðuna
www.menntaborg.is.
Í dag stendur Borgarfjörður svo sannarlega undir nafni sem
þekkingarsamfélag og óska ég Borgfirðingum öllum, nær og fjær til
hamingju með áfangann.
|