Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
NV kjördæmi
Tilkynning um framboð
Breyting á framboði.
Kæru vinir. Vegna þeirra frétta sem bárust í gær um að Ásmundur Einar Daðason, núverandi oddviti Framsóknar í kjördæminu og nágranni minn, myndi gefa kost á sér í Reykjavík fyrir komandi kosningar hef ég ákveðið að gera breytingu á framboði mínu. Ég tilkynni því hér með að ég muni gefa kost á mér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Ég hef mikinn metnað fyrir verkefninu en áður hafði ég gefið það út að ég myndi sækjast eftir þriðja sætinu. Þá var ég að horfa til búsetudreifingar á listanum. Nú mun ég fara á fullt skrið. Þetta er stórt verkefni sem ég hef gaman af en ég þarf líka aðstoð. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa tekið jákvætt í framboð mitt og eru tilbúin til þess að hjálpa. Ég vona að það séu fleiri í Norðvesturkjördæmi sem eru tilbúin til þess að aðstoða mig við að ná sætinu. Til þess þarf að skrá sig í Framsókn á þessum hlekk fyrir 16. janúar: https://framsokn.is/ganga-i-flokkin/ Síðan kemur póstur til flokksfélaga í febrúar þar sem kosið er á listann. |
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Aldur:
24 ára Búseta: Bakkakot, Borgarfjörður Atvinna/nám: Lilja er í háskólanámi í faggreinakennslu. Hefur lokið stúdent frá Verzlunarskóla Íslands. Lilja hefur unnið í ferðaþjónustu, skólakerfinu, nefndum, starfshópum og stjórnum. Er stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs námsmanna og Námsstyrkjanefndar MSN. Störf innan flokksins:
Hafa samband: Tölvupóstur: liljarannveig@gmail.com |