10/3/2023 Kick off í Kraganum
23/2/2023 Heimsókn í HeilbrigðisráðuneytiðÍ kvöld fengum við drjúgan tíma á fundi með heilbrigðisráðherra
Þar ræddum við: ▪️Skimun fyrir ristilkrabbameini ▪️ Framgang í byggingu nýs Landsspítala ▪️ Hugmyndir um sólarhringsleikskóla á Landsspítalanum fyrir starfsfólk hans ▪️ Stöðu heyrnarfræðinga hér á landi ▪️ og loks blóðgjöf samkynhneigðra karlmanna Við þökkum Willum Þór fyrir hlýjar móttökur í heilbrigðosráðuneytið 24/1/2023 Skuggaráðuneyti á morgunUngt framsóknarfólk fær reglulega tækifæri til þess að hitta ráðherra Framsóknar og kynnast störfum þeirra betur. Þau sem taka þátt í fundinum hafa tækifæri á að spyrja ráðherra spurninga, bæði formlegra og óformlegra.
Næsta Skuggaráðuneyti verður haldið á miðvikudaginn, 25. janúar, kl. 17 þar sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tekur á móti okkur. Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í gegnum fjarfund á Zoom, en hlekkur verður sendur á netföng þeirra sem hafa skráð sig fyrir fundinn. Mikilvægt er að öll sem ætla að taka þátt skrái sig fyrir kl. 18:00 þann 24. janúar og taki þar fram hvort þau ætli að taka þátt í fjarfundi eða mæta í persónu. Skráningarformið má finna hér: https://forms.gle/onxDH7wprWFkZo3J6 Ef þú hefur einhverjar spurningar getur þú alltaf haft samband í gegnum netfangið suf@suf.is eða skilaboð á Facebook síðunni okkar https://www.facebook.com/ungirframsoknarmenn |