Málefna- og fræðslunefnd
Hlutverk nefndarinnar er að auka þátttöku og áhrif ungra framsóknarmanna í starfi Framsóknarflokksins, skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu SUF ásamt því að skipuleggja fræðslu- og kynningamál SUF. Málefna- og fræðslunefnd undirbýr ályktanir fyrir hönd stjórnar fyrir sambandsþing eftir nánari ákvörðun stjórnar.
- Formenn: Davíð Freyr Jónsson og Sigurjón Njarðarson
Nefnd um innra starf SUF
Hlutverk nefndarinnar er að efla og samræma starf FUF-félaganna um landið. Mikilvægt er að SUF með aðstoð nefndarinnar styðji við starf FUF félaganna og veiti þá aðstoð sem er á færi SUF að veita. Nefndinni er frjálst að heimila öðrum félagsmönnum í SUF að taka þátt í starfi nefndarinnar.
- Formaður: Ása María Guðmundsdóttir
Alþjóðanefnd
Hlutverk nefndarinnar er að sinna alþjóðlegu samstarfi SUF, skipuleggja þáttöku SUF í alþjóðlegum samtökum og sjá um samskipti við þau samtök og ungliðahreyfingar systurflokka Framsóknarflokksins víðs vegar um heiminn.
- Formaður: Sandra Rán Ásgrímsdóttir