1. kafli – Tilgangur og hlutverk
1.1
Samband ungra framsóknarmanna, SUF, er landssamband ungs framsóknarfólks og starfar innan Framsóknarflokksins. Aðsetur þess og varnarþing er í Reykjavík. Hlutverk SUF er að efla og samræma starf félaga ungs framsóknarfólks, auka þátttöku og efla hlut félagsmanna sinna í starfi Framsóknarflokksins og afla flokknum fylgis á meðal ungs fólks.
2. kafli – Um félagsmenn
2.1
Félagar í Sambandi ungra framsóknarmanna eru þeir félagar í Framsóknarflokknum sem eru á aldursbilinu 16 til 35 ára. Félagi á aðild að SUF út árið sem hann verður 35 ára.
3. kafli – Félög ungs framsóknarfólks
3.1
Félög ungs framsóknarfólks eru grunneiningar SUF. Þau félög ungs framsóknarfólks sem aðild eiga að Framsóknarflokknum, að fengnu samþykki landsstjórnar, skulu hljóta sjálfkrafa aðild að SUF og skal um starf þeirra fara eftir ákvæðum laga Framsóknarflokksins og viðkomandi kjördæmissambands.
3.2
SUF skal styðja við starf einstakra aðildarfélaga eftir megni.
3.3
Hvert félag skal halda aðalfund árlega.
4. kafli – Um sambandsþing
4.1
Sambandsþing hefur æðsta vald í málefnum Sambands ungra framsóknarmanna. Á sambandsþingi skal marka stefnu sambandsins og taka ákvarðanir um starf þess, skipulag og fjárreiður.
4.2
Samband ungra framsóknarmanna heldur árlega sambandsþing og skal það haldið á tímabilinu 15. janúar til 15. febrúar. Sambandsþing SUF skal aldrei vera haldið tvö ár í röð í sama kjördæmi og leitast skal eftir því að halda sambandsþingið á minnst sex ára fresti í hverju kjördæmi. Stjórn SUF boðar til sambandsþings. Boða skal til sambandsþings með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara, bréflega eða á annan óvefengjanlegan hátt, s.s. með auglýsingu á samtengdum rásum Ríkisútvarpsins. Í þingboði skal getið dagskrár. Sambandsþing er löglegt sé löglega til þess boðað.
4.3
Allir félagsmenn í SUF hafa rétt til setu á sambandsþingi með fullum réttindum. Stjórn SUF er þó heimilt að ákveða þinggjald og gera greiðslu þess að skilyrði fyrir atkvæðisrétti á sambandsþingi. Atkvæðisrétt á sambandsþingi hafa þeir sem hafa skráð sig í Framsóknarflokkinn 4 vikum fyrir sambandsþing samkvæmt félagatali á skrifstofu flokksins.
4.4
Á sambandsþingi skal kjósa í eftirfarandi embætti:
a) Formann
b) 12 menn í stjórn og jafnmarga til vara. Skal a.m.k. einn aðal- og varamaður koma úr hverju kjördæmi en eigi fleiri en 3 að meðtöldum formanni.
c) 2 skoðunarmenn reikninga og tveir til vara.
4.5
Framboðum til formanns skal skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eiga síðar en viku fyrir setningu sambandsþings. Stjórn SUF skal standa að sameiginlegri kynningu á frambjóðendum til formanns.
5. kafli – Um stjórn SUF, framkvæmdastjórn og fastanefndir
5.1
Stjórn SUF skipa formaður SUF ásamt 12 aðalmönnum kosnum á sambandsþingi.
5.2
Stjórn SUF ber ábyrgð á öllu innra starfi SUF og skal funda a.m.k. 8 sinnum á ári. Stjórn SUF skal flytja skýrslu um störf sín á sambandsþingi.
5.3
Formaður boðar fundi stjórnar og er fundur löglegur sitji meirihluti hennar fund.
5.4
Á fyrsta fundi sínum skal nýkjörin stjórn SUF kjósa úr sínum hópi varaformann, ritara, ritstjóra og gjaldkera. Mynda þau framkvæmdastjórn ásamt formanni.
Formaður boðar til funda framkvæmdastjórnar og skulu þeir haldnir a.m.k. einu sinni í mánuði. Fundir framkvæmdastjórnar eru löglegir sitji meirihluti hennar fund.
Framkvæmdastjórn fer með daglegan rekstur SUF og undirbýr stjórnarfundi en skal ekki senda frá sér ályktanir í eigin nafni.
Hlutverk og ábyrgð einstakra framkvæmdastjórnarmanna er eftirfarandi:
a) Formaður: Formaður SUF er formaður framkvæmdastjórnar og málsvari sambandsins jafn út á við sem inn á við.
b) Varaformaður: Varaformaður er staðgengill formanns og gegnir störfum formanns í forföllum hans.
c) Gjaldkeri sér um allar fjárreiður SUF og heldur bókhald sambandsins, varðveitir fylgiskjöl og annast alla nauðsynlega samningagerð því tengda.
d) Ritari: Ritari heldur fundargerðir SUF á fundum framkvæmdastjórnar og stjórnar. Ritari ber ábyrgð á útsendingu fundargerða. Ritari skal sjá um að varðveita samþykktir og fundargerðir stofnana SUF og sjá til þess að þær séu aðgengilegar.
e) Ritstjóri: Ritstjóri er umsjónarmaður vefsíðu SUF og allrar annarrar útgáfu á vegum sambandsins. Ritstjóra er heimilt að gera tillögu til stjórnar að skipun ritstjórnar.
5.5
Á fyrsta fundi sínum skal nýkjörin stjórn SUF kjósa úr hópi stjórnar- og varastjórnar SUF, formenn fastanefnda. Formenn bera ábyrgð á því að nefndir haldi að jafnaði fund einu sinni í mánuði á starfstíma sínum og skili fundargerðum til stjórnar. Heiti og hlutverk nefndanna eru eftirfarandi:
a) Málefna- og fræðslunefnd: Hana skipa formaður nefndarinnar, sem stjórn SUF skipar, og fjórir meðstjórnendur. Skal nýkjörinn formaður gera tillögu til stjórnar SUF um meðstjórnendur, en stjórn SUF skipar þá. Hlutverk nefndarinnar er að auka þátttöku og áhrif ungra framsóknarmanna í starfi Framsóknarflokksins, skipuleggja og hafa umsjón með málefnastarfi og stefnumótunarvinnu SUF ásamt því að skipuleggja fræðslu- og kynningamál SUF. Málefna- og fræðslunefnd undirbýr ályktanir fyrir hönd stjórnar fyrir sambandsþing eftir nánari ákvörðun stjórnar. Nefndinni er frjálst að heimila öðrum félagsmönnum í SUF að taka þátt í starfi nefndarinnar. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á sambandsþingi ár hvert.
b) Nefnd um innra starf SUF: Hana skipa formaður nefndarinnar, sem stjórn SUF skipar, og fjórir meðstjórnendur. Skal nýkjörinn formaður gera tillögu til stjórnar SUF um meðstjórnendur, en stjórn SUF skipar þá. Leitast skal við að hafa einn aðila frá hverju kjördæmi í nefndinni. Hlutverk nefndarinnar er að efla og samræma starf FUF-félaganna um landið. Mikilvægt er að SUF með aðstoð nefndarinnar styðji við starf FUF félaganna og veiti þá aðstoð sem er á færi SUF að veita. Nefndinni er frjálst að heimila öðrum félagsmönnum í SUF að taka þátt í starfi nefndarinnar. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á sambandsþingi ár hvert.
c) Alþjóðanefnd: Hana skipa formaður nefndarinnar, sem stjórn SUF skipar, og fjórir meðstjórnendur. Skal nýkjörinn formaður gera tillögu til stjórnar SUF um meðstjórnendur, en stjórn SUF skipar þá. Hlutverk nefndarinnar er að sinna alþjóðlegu samstarfi SUF, skipuleggja þáttöku SUF í alþjóðlegum samtökum og sjá um samskipti við þau samtök og ungliðahreyfingar systurflokka Framsóknarflokksins víðs vegar um heiminn. Nefndinni er frjálst að heimila öðrum félagsmönnum í SUF að taka þátt í starfi nefndarinnar. Nefndin skal flytja skýrslu um störf sín á sambandsþingi ár hvert.
5.6
Hverfi formaður SUF frá störfum áður en kjörtímabili hans lýkur þá tekur varaformaður við sem formaður í hans stað. Skal þá stjórn SUF kjósa nýjan varaformann.
Hverfi stjórnarmaður frá störfum áður en kjörtímabili hans lýkur skal bjóða fyrsta varastjórnarmanni að taka sæti hans í stjórn, þá öðrum og síðan koll af kolli. Þó skal gæta þess að öllum sérákvæðum um skipan stjórnar SUF sé fylgt. Fyrsti varamaður telst sá sem varð efstur í kjöri til varastjórnar eða var efstur á lista varastjórnarmanna sem samþykktur var á sambandsþingi. Stjórn SUF staðfestir inntöku nýs stjórnarmanns.
Hverfi einhver embættismaður á vegum SUF, annar en formaður frá störfum skal stjórn SUF kjósa nýjan í hans stað.
6. Kafli – Formannafundur
6.1
Formannafundur skal vera haldinn að hausti ár hvert. Stjórn SUF boðar til fundar. Á fundinum flytur formaður SUF skýrslu stjórnar og fer yfir starfið frá síðasta sambandsþingi. Á fundinum gefa formenn aðildarfélaga SUF munnlega skýrslu um starfið í þeirra félagi. Seturétt á fundinum hafa allir formenn aðildarfélaga SUF ásamt stjórnum, stjórn SUF og nefnd um innra starf SUF. Boða skal til formannafundar ef 1/3 formanna óska þess skriflega.
7. kafli – Ýmis ákvæði
7.1
Þegar formaður, staðgengill hans eða aðrir stjórnarmenn koma fram fyrir hönd sambandsins opinberlega skulu þeir gæta fyllstu háttvísi.
7.2
Allar kosningar samkvæmt lögum þessum skulu vera skriflegar, ef þess er óskað og því verður við komið, og skulu atkvæðaseðlar jafnan eyðilagðir að lokinni kosningu.
7.3
Ef ekki er annað tekið fram í lögum þessum skal einfaldur meirihluti ráða ákvörðun innan SUF.
7.4
Rísi ágreiningur um hvernig ber að skilja lög þessi sker stjórn SUF úr. Áfrýja má þeim úrskurði til laganefndar Framsóknarflokksins. Úrskurður stjórnar ræður þó þar til laganefnd hefur fjallað um málið.
7.5
Lögum þessum verður aðeins breytt á sambandsþingi með 2/3 hlutum greiddra atkvæða. Tillögum að lagabreytingum skal skilað til stjórnar SUF 14 dögum fyrir þing sambandsins. Leggja skal breytingar á lögunum til landsstjórnar Framsóknarflokksins til staðfestingar.
7.6
Lög þessi öðlast gildi um leið og landsstjórn Framsóknarflokksins hefur staðfest þau. Jafnframt falla úr gildi fyrri lög SUF sem samþykkt voru á 25. þingi SUF sem haldið var á Nesjavöllum í Grafningi 1994.
- Samþykkt á 29. þingi SUF 2001
- Breytt á 30. þingi SUF 2002
- Breytt á 32. þingi SUF 2004
- Breytt á 34. þingi SUF 7.-8. júní 2008
- Breytt á 35. þingi SUF 12.-13. september 2009
- Síðast breytt á 36. þingi SUF 25-26. september 2010, birt með fyrirvara um staðfestingu landsstjórnar Framsóknarflokksins.