Samband ungra framsóknarmanna var stofnað að Laugarvatni árið 1938 og er með elstu grasrótarsamtökum ungs fólks á Íslandi. Það samanstendur um þessar mundi af 20 aðildarfélögum víðast hvar um landið.
Í lögum SUF segir að hlutverk sambandsins sé að efla og samræma starf félaga ungs framsóknarfólks, auka þátttöku og efla hlut félagsmanna sinna í starfi Framsóknarflokksins og afla flokknum fylgis á meðal ungs fólks.