Ungt framsóknarfólk er frjálslynt miðjufólk, víðsýnt og framkvæmdaglatt. Í stað þess að horfa til fortíðar er horft fram á veginn. Þar bíða verkefni sem takast þarf á við án þess að beita gömlum kreddusetningum bókstafstrúarmanna til hægri eða vinstri. Erlendar stjórnmálakenningar sem oft hljóma líkt og einfaldar töfralausnir hafa ekki virkað hingað til á Íslandi og ekkert bendir til þess að breyting verði á því.
Ungt framsóknarfólk hafnar stefnu vinstri flokkanna sem gengur út á velferðarstefnu þeirra sem minnst mega sín framar öllu öðru og jöfnuð sem hefur fáar lausnir fram að færa til án þess að tryggja tekjur sem standa undir útgjöldunum sem fylgja slíku velferðarkerfi. Stefnan er til þess fallin að skapa gengdarlausan halla á ríkissjóði sem leiðir til hruns velferðarkerfisins.
Sömuleiðis hafnar ungt framsóknarfólk stefnu hægri flokka sem leggja ofuráherslu á velgengni viðskiptamanna og atvinnulífsins en gleyma velferð þegnanna eða halda að slík velferð komi af sjálfu sér. Slík stefna leiðir til óánægju og misréttis. Til hægri og vinstri má þó finna margar nothæfar hugmyndir og þeim ber að beita eftir því sem við á til að bregðast við hinum mörgum viðfangsefnum þjóðfélagsins. En einstefna mun þó aldrei leiða til árangurs.