SUF
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
Search by typing & pressing enter

YOUR CART

13/10/2024

Ályktun stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna

Picture
Ungu Framsóknarfólki blöskrar ákvörðun formanns Sjálfstæðisflokksins um að slíta ríkisstjórnarsamstarfi á þessum tímapunkti og leitast við að ganga til kosninga í nóvember. Okkur  þykir þetta heigulsháttur, þetta er gert með hagsmuni hans flokks í huga umfram hagsmuni þjóðarinnar.

Það er stór ákvörðun að gefa kost á sér til þess að vera málsvari kjósenda í fjögur ár á þingi og henni fylgir mikil ábyrgð. Hvað þá þegar fólki hlotnast sá heiður að taka þátt í ríkisstjórn þar sem þau hafa frekara tækifæri til þess að móta framtíð þjóðarinnar. Það er sorglegt að forsætisráðherra og samflokksfólk hans taki þeirri ábyrgð ekki alvarlegar en raun ber vitni.

Slit á ríkisstjórnarsamstarfi ætti að vera neyðarventill sem er notaður þegar aðstæður skapast þar sem ómögulegt er að halda áfram, ekki björgunarbátur til að hoppa í þegar skoðanakannanir eru flokkum óhagstæðar eða menn þurfa að miðla málum í ríkisstjórnarsamstarfi.

Efnahagsmálin eru loksins að komast á réttan kjöl og vextir byrjaðir að lækka. Þá er það gjörsamlega óábyrgt að stefna því í hættu með því að skapa hér pólitíska óvissu.
​
Við hræðumst ekki kosningar og teljum að verk þingmanna og ráðherra Framsóknar tali fyrir sig sjálf.
 
Þessi ályktun var samþykkt af stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna þann 13. október 2024.

Comments are closed.

Vilt þú taka þátt í starfi Framsóknar og hafa áhrif?
Skráðu þig í flokkinn á framsokn.is

Samband ungra Framsóknarmanna

[email protected]