SUF
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
  • Fréttir
  • Greinar
  • Ályktanir
  • Stjórnin
    • Framkvæmdastjórn
    • Stjórn 2023-2024
    • Nefndarstörf
  • Annað
    • Orðskýringar
    • Samtíminn - 80 ára afmælisrit
    • Samtíminn - 85 ára afmælisrit
    • Myndir
  • Um okkur
    • Sagan
    • Stefna SUF
    • Lög SUF
    • Aðildarfélög >
      • Öll FUF - félögin
    • Facebook hópar
    • Alþjóðastarf
    • Hafðu samband
Search by typing & pressing enter

YOUR CART

17/10/2024

Af sambandsþingi í kosningabaráttu

Picture
Síðustu helgi fór fram 49. sambandsþing Sambands ungra Framsóknarmanna í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Á Sambandsþinginu kom saman ungt Framsóknarfólk af öll landinu saman til þess að ræða málefni ungs fólks og rita stefnu Sambandsins. Gunnar Ásgrímsson var þar endurkjörin formaður eftir málefnalega baráttu við Kjartan Helga Ólafsson sem tók sæti í stjórn og ganga þeir því sameinaðir eftir baráttuna til kosninga. Þá var einnig kjörin ný stjórn SUF sem tók strax til starfa þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnti ákvörðun sína um að slíta ríkisstjórnarsamstarfi aðeins nokkrum mínútum eftir þingslit.
 
Gunnar Ásgrímsson endurkjörin
Gunnar, er 24 ára Skagfirðingur sem stundar nám í kennslufræðum við Háskóla íslands og starfar samhliða því sem stundakennari í grunnskóla. Hann hefur verið virkur í félagsstarfi flokksins og innan sambandsins síðan 2018, en hann hefur setið í framkvæmdastjórn SUF bæði sem ritari og varaformaður. Málefni og réttindi ungs fólks brenna á Gunnari sem bauð sig á síðasta ári fram til forseta til þess að benda á skekkjur í kröfum sem gerðar eru til slíks framboðs, meðal annars 35 ára aldurstakmarks frambjóðendur þurfa að hafa náð.

“Framsókn er öfgalaus en samt róttækur umbótaflokkur sem setur hagsmuni fjölskyldufólks í fyrsta sæti. Við erum að fara inn í kosningar og þarf SUF að vera duglegt í nýliðun og hagsmunastarfi fyrir ungt fólk þegar að kemur að áherslum flokksins fyrir kosningar,“ segir Gunnar.
Picture
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður ávörpuðu þingið ásamt Ásmundi Einari Daðasyni og Jóhanni Friðriki Friðrikssyni þingmönnum flokksins. Ungu Framsóknarfólki gafst þá tækifæri í kjölfarið til þess að eiga við þau samtal og koma sínum málum áleiðis til þeirra. Ekki slæmt veganesti inn í kosningar.
 
Stefna SUF sem samþykkt var á þinginu verður birt á samfélagsmiðlum SUF og hér á vefnum á næstu dögum.

Í nýrri stjórn ungrar Framsóknar eru:
Aron Kári Ágústsson
Elín Karlsdóttir
Heiðdís Geirsdóttir
Hrafn Splidt Þorvaldsson
Karítas Ríkharðsdóttir
Kjartan Helgi Ólafsson
Ólöf Rún Pétursdóttir
Sæþór Már Hinriksson
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Skúli Bragi Geirdal
Urður Björg Gísladóttir
Þórunn Dís Þórunnardóttir

Comments are closed.

Vilt þú taka þátt í starfi Framsóknar og hafa áhrif?
Skráðu þig í flokkinn á framsokn.is

Samband ungra Framsóknarmanna

[email protected]