suf.is

Íslensk umræðuhefð og hinir hálfvitarnir
Mynd: NASA Goddard (Creative Commons by-nc-nd)

Eftir hrun var mikið talað um nýtt Ísland af því almenningi fannst, einhvern veginn, að gamla Ísland hafi mistekist. Ég vil búa á þessu nýja Íslandi – því sjitt hvað ég held að það sé mikil snilld! Sjálfsagt hafa allir sínar eigin hugmyndir um hið fullkomna samfélag og það nýja Ísland sem ég sé í hyllingum er sennilega frábrugðið þínum hugmyndum um hið nýja Ísland. Það sem mig langar helst að breytist í samfélaginu okkar er umræðuhefðin, bæði tengd stjórnmálum en líka bara almennri þjóðfélagsumræðu. Það er enginn einn sem ræður íslenskri umræðuhefð. Við stýrum henni öll. Ef við erum sammála um að hún eigi að breytast þá getur hún gert það.

Sem virkur félagi í stjórnmálaflokki langar mig að tala um íslenska stjórnmálamenningu og hvernig mér finnst að við ættum að breyta henni. Eftir að ég gekk í Framsóknarflokkinn hefur verið vinsælt að ræða við mig um hlut hans í hruninu og einstaklinga sem störfuðu í flokknum fyrir mörgum árum síðan. Færri vilja ræða við mig um hvaða hugmyndir ég hef um stjórnmál eða framtíðarsýn mína og Framsóknarflokksins fyrir Ísland.

Að útskýra íslensk stjórnmál ætti að vera tiltölulega auðvelt. Á Íslandi eru fjórir sögulega stórir stjórnmálaflokkar og nokkuð fastmótað fjögurra flokka kerfi hefur verið við lýði hér síðan um 1930. Kerfið samanstendur af tveimur vinstri flokkum, einum miðjuflokki og einum hægriflokki.

Þar sem aðeins einn hægriflokkur er á Íslandi spannar hann tiltölulega víðan ramma hugsjóna, allt frá hinu ysta hægri og inn að miðju. Þar sameinast íhaldsmenn og frjálshyggjumenn.

Framsóknarflokkurinn er miðjuflokkur sem hefur rætur sínar í dreifbýli sem bændaflokkur. Flokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur sem byggir stefnu sína mikið á atvinnumálum og samvinnustefnu. Frjálslyndisstefnan er grunnstefið í hugmyndafræðilegum bakgrunni flokksins en hún grundvallast á mannréttindum og einstaklingsfrelsi.

Samfylkingin er flokkur jafnaðarmanna á Íslandi. Í Samfylkingunni eru kratar, sósíaldemókratar.

Sá flokkur á Íslandi sem flokkast lengst til vinstri er Vinstrihreyfingin- grænt framboð. VG byggir á hugmyndafræði vinstrimanna en er líka flokkur græningja á íslandi og leggur mikið uppúr umhverfismálum, meðal annars með andstöðu sinni við stóriðju.

Félagsmenn í öllum þessum flokkum hafa hugsjónir og stefnu sem þeir telja að í framkvæmd tryggi hagsmuni lands og þjóðar. Ég leyfi mér að fullyrða að ákaflega fáir starfi að stjórnmálum af því að þeir vilji almenningi eitthvað illt. Fólk fer almennt út í stjórnmál af hugsjónum og góðum vilja. Þó að við séum hugmyndafræðilega ósammála um hver sé leiðin að góðu þjóðfélagi erum við öll sammála um að við viljum búa í góðu þjóðfélagi. Við verðum að virða þetta við hvert annað.

Sú stjórnmálamenning sem er við lýði á Íslandi litast mikið af óvild í garð fólks sem hefur aðrar hugsjónir. Í dag sá ég grín mynd á feisbúkk af þekktri konu sem nýlega hafði tilkynnt um hún væri gengin til liðs við Framsóknarflokkinn. Textinn á myndinni var eftirfarandi ,,Talar gegn spillingu. Gekk í Framsóknarflokkinn” Eins og það væri fráleit hugmynd að berjast gegn spillingu í Framsóknarflokknum.

Á Íslandi er orðið krati oft notað eins og það sé eitthvað fúkyrði, sem það er ekki. Það lýsir hugmyndafræðilegum hugsjónum.

„Allt er betra en íhaldið“ er líka ákaflega vinsæl setning sem ég er ekki saklaus af að hafa látið falla. Sú fullyrðing er hins vegar einfaldlega röng því þegar ég hugsa um það get ég ímyndað mér svo fáránlega margt sem er verra en íhaldið, í fljótu bragði dettur mér til dæmis í hug holdsveiki. Holdsveiki er svo miklu verri en Sjálfstæðisflokkurinn.

Ég man líka eftir leiðinlegu umtali um vinstri græna á Austurlandi þegar þeir voru áberandi í andstöðu sinni við virkjanaframkvæmdirnar við Kárahnjúka. Talað var um þingmenn flokksins eins og veruleikafirrta fábjána sem héldu að hagsmunum Austfirðinga væri best borgið með fjallagrasatínslu. Sem var ósanngjarnt. Þó að einhver haldi að hugmyndir þínar um framtíðina séu ekki góðar gerir það þá ekki að vondu fólki eða heimskingjum.

Aldrei hefur verið sannað að einhver ein stjórnmálastefna sé lykillinn að velgengni. Það er svo misjafnt hvaða leiðir virka. Það er svo ákaflega mikil tilhneiging í stjórnmálaumræðu á Íslandi til þess að einfalda málin með því að gera þá sem hafa aðrar hugmyndir að heimskingjum eða útmála þá sem vont fólk.

Ekki misskilja mig – ég er Framsóknarkona af heilum hug og hef tröllatrú á stefnu flokksins umfram stefnu annarra flokka. Ég aðhyllist frjálslyndisstefnuna og trúi því einlæglega að atvinna sé lykillinn að velferð þjóðarinnar. „Vinna, vöxtur, velferð.“ Þau forréttindi felast líka í því að vera miðjumanneskja að geta séð það besta í hugmyndafræði beggja vegna miðjunnar. Ég veit að stundum virka lögmál markaðarins en ég veit líka að stundum þarf ríkisafskipti.

Ég þekki heilsteypt, gott og snjallt fólk í öllum flokkum. Berum virðingu hvert fyrir öðru og fyrir okkar eigin hugðarefnum með því að rökræða um hugmyndir, hugsjónir og málefni í stað þess að tala niður þá sem eru ósammála okkur. Það er líka svo fáránlega mikið skemmtilegra.

Aðalfundur FUF-RVK
Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík boðar til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 18. apríl kl. 21:00 í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík.

Dagskrá:

Fundarsetning

Kosning fundarstjóra og fundarritara ásamt starfsnefnd

Skýrsla stjórnar og gjaldkera

Lagabreytingar

Kosningar:

formaður

meðstjórnendur (6)

varastjórn (5)

skoðunar- og varaskoðunarmenn reikninga (2)

Kosning fulltrúa á Kjördæmaþing KFR

Ályktanir og almennar stjórnmálaumræður

Önnur mál

Framboðum til formanns og til stjórnar ásamt lagabreytingatillögum skal skila skriflega til skrifstofu Framsóknarflokksins á netfangið framsokn@framsokn.is fyrir kl. 21.00 mánudaginn 16. apríl n.k. skv. lögum félagsins.

Þeir félagsmenn sem vilja gefa kost á sér til setu á kjördæmaþingi KFR eru beðnir að senda beiðni þess efnis á netfangið framsokn@framsokn.is.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta – nýir félagar velkomnir!

Fésbókarsíða FUF-RVK: http://www.facebook.com/FufRvk

Kosningar um áframhaldandi aðildarviðræður
Stjórn SUF samþykti eftirfarandi ályktun á fundi sínum þann 27. mars:

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna krefst þess að Alþingi íslendinga veiti þjóðinni vald til að ákvarða um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í atkvæðagreiðslu í sumar samhliða forsetakosningum. Það er ákaflega mikilvægt að þjóðinn fái að taka afstöðu í málinu enda varðar það hag okkar allra.

Aðildarferlið hófst án raunverulegs umboðs þjóðarinnar en eftir þær miklu breytingar sem orðið hafa á efnahagslegu umhverfi Evrópusambandsins telur stjórn SUF að forsendubrestur hafi orðið frá því Alþingi samþykti að hefja viðræðurnar og því mikilvægara en nokkru sinni að þjóðin fái að taka afstöðu.Til að klára megi ferlið í einhverri sátt við þjóðina er mikilvægt að umboðið sé hreint og án vafa.

Alþjóðanefnd SUF með fund 20. mars kl. 20:00
Þriðjudaginn 20. mars kl. 20:00 er fundur á vegum Alþjóðanefndar SUF á Hverfisgötu 33. Allir SUFarar eru hvattir til þess að koma við og kynna sér nefndina og taka þátt í spennandi starfi.

Eftir fund er áætlað að rölta niður á Den Danske Kro og hitta kunningja frá Ungmennaráði Norðurlandanna (UNR).

Alþjóðanefnd SUF
Á síðasta kjörtímabili tók ég við sem formaður alþjóðanefndar SUF og held því starfi áfram á komandi tímabili. Alþjóðastarf er okkur mikilvægt til að fylgjast með því sem er að gerast á heimsvísu og eiga auðveldara með að leita aðstoðar útí heimi þegar þess þarf. SUF leggur sérstaka áherslu á að halda góðu sambandi við Norðurlöndin og erum við meðlimir í NCF (Nordiske Center Forbund) sem er samstarf miðjuflokka á Norðurlöndunum en einnig samtökum miðjuflokka á heimsvísu, ILFRY (International Federation of Liberal Youth).

Á haustdögum sendi SUF út 3 fulltrúa á þing ungmennaráðs Norðurlandanna (UNR) sem fór fram í Kaupmannahöfn og nú eftir jól 2 fulltrúa á fund NCF í Stokkhólmi. Það starf sem við höfum sótt erlendis hefur ætíð verið málefnalegt þar sem að við komumst í tæri við það sem er efst á baugi hjá hinum Norðurlandaþjóðunum og sameiginleg málefni þjóða eru rædd og oft reynt að finna lausnir á vandamálum. En auk málefnavinnu kynnumst við einnig fullt af nýju skemmtilegu fólki sem hefur svipaða sýn á málefni heimsins og eignumst vini til framtíðar.

Ég hvet alla áhugasama SUF-ara að mæta á fund Alþjóðanefndar sem verður haldinn n.k. Þriðjudag á Hverfisgötu 33. Kl 20:00 Eftir fund munum við síðan rölta saman á Den Danske Kro og hitta kunningja frá UNR

Sandra Rán Ásgrímsdóttir

Formaður Alþjóðanefndar SUF

Hér að neðan fylgir ferðasagan frá Stokkhólmi fyrir áhugasama

NCF Top Meeting

Stockholm 9-12 February 2012

Final Document

Committee on the Final Document:

Agnar Bragi Bragason,  SUF (Chair), Algot Thorin, CUF (Secretary), Ida Lise Letnes, Senterungdommen, Jouni Ovaska, Keskustanuoret, Karin Fälldin, CUF, Pia Hanhimäki, Svensk Ungdom, Sandra Rán Ásgrímsdóttir, SUF.

Thursday.

16.00. Arrival in Stockholm. Participants found the Swedish Center Party office and were on time, except for one Swedish girl who got lost in Gamla Stan, but she arrived eventually. The participants had a coffee and enjoyed each other company and the atmosphere was friendly.

16.30. NCF was honored with a speech from Annie Lööf, the president of the Swedish Centre Party and Swedish Minister of Enterprise. She talked about her history in NCF and how she enjoyed her work in the organization in her early days of her political carrier, obviously her time in NCF was a great part of her later achievements.  She is still strongly engaged in Nordic matters. She also spoke about her work as a minister and party leader.

18.00. After checking in at the “Best Hostel” in Gamla Stan the group dined at “Slingerbulten”, it was delicious. Afterwards most of the group went out socializing, made new friends and sang a lot. The NCF board convened in a board meeting and then joined the others.

Friday.

09.00. Visit to the Swedish Parliament, “Riksdagen”. The delegation got a tour of the parliament, the parliament building was impressive. The guide spoke both about the history of the parliament and the everyday work, and he also explained the similarities and differences between the Nordic parliaments.

11.00. The group gathered in “Bååtska Rummet” in “Gamla Stan” to hear a lecture from  Mattias Svensson, a Swedish libertarian writer and political commentator. The main topic of the lecture was “Freedom and Guardians”.

12.00. Lunch at a local pizzeria.

13.00. Johan Linander, Swedish Centre Party member of parliament, the Nordic council and former NCF board member spoke about how we should emphasize the Nordic Council. It is of real relevance to the Nordic countries and has a real impact on Nordic policies.

14.00. Long coffee break.

16.00. Anna-Karin Hatt, vice-president of the Swedish Centre Party and Minister of Information Technology and Energy, and also a former president of NCF back in the 90’s, spoke of Swedish aspects  to the Nordic challenges in information technology and energy. She also gave advice and encouragement to the current NCF members and future politicians. It was a well prepared speech and it was very appreciated by the participants.

18.00. After dinner at Vapiano´s, part of the group continued the socialization at a Medieval pub in Gamla Stan.

Saturday.

09.30. After a couple of late arrivals, the group was divided into four and discussed the definition of Nordic Solidarity.

10.30. Top meeting commenced, Three committees was appointed: Committee for resolutions, committee for new resolutions and committee for the final document. The committees convened and worked hard until noon.

12.00. Lunch at the party office.

13.00. Top meeting reassembled. Fruitful discussions continued throughout the day. NCF passed two resolutions. The former considering the worrying erosion of fundamental rights and freedoms in Hungary, calling upon the matter to be raised in the parties, Nordic Youth Council and the Nordic Council. The latter resolution raises serious doubt about ACTA, the new Anti-Counterfeiting Trade Agreement, and urges the parties to stop the ratification process of that agreement.

16.00. Early dinner at the party office.

20.00. Nordic Cultural Evening. NCF held its traditional Nordic evening filled with culture, warmth and good spirits at the PARTY office. Each member organization performed a home-style act, and this time the Finnish speaking Finns were the best act. Everybody drank with dignity and returned to the hostel at least in time for a nap before packing for the journey back home.

Sunday.

The participants returned home to corners of the Nordic Region, enlightened and delighted by the meeting.

Er ókleifur samskiptamúr milli heyrandi og heyrnarlausra?
Í júní á síðasta ári staðfesti Alþingi, með lögum nr. 61/2011, stöðu íslensks táknmáls sem fyrsta mál þeirra sem ekki eiga þess kost að nota íslenska tungu til daglegra samskipta. Allir þeir sem þurfa að reiða sig á táknmál og börn þeirra ættu nú að eiga þess kost að læra það jafnskjótt og auðið er.

Ábyrgð þeirra sem heyra

Barnið mitt gengur í leikskólann Sólborg í Reykjavík. Sá leikskóli er skóli án aðgreiningar og þar er öllum heyrandi börnum kynnt táknmál. Leikskólinn er samkvæmt skilgreiningu tvítyngdur og leikskólakennararnir ýmist heyrandi, heyrnarskertir eða heyrnarlausir. Þegar barnið mitt hóf skólagöngu sína þarna þurfti ég að byrja að horfast í augu við það að við suma kennarana gat ég ekkert tjáð mig. Einu samskiptin sem ég er fær um að eiga við suma kennarana er handahófskennt handapat, auk þess sem ég er orðin sérfræðingur í því að brosa og vinka í tíma og ótíma. Mikið óskaplega væri ég til í að hafa lágmarks kunnáttu í íslensku táknmáli þó það væri ekki til annars en að biðjast afsökunar á þessum vandræðalegu tilfæringum mínum.

Tungumálakennsla og samskiptahæfni

Í grunnskóla er börnum kennt ýmislegt sem nýtist þeim á lífsleiðinni. Mikil áhersla er lögð á tungumálanám og er enska, danska og íslenska fyrirferðarmikill þáttur í stundarskránni frá fimmta bekk og upp úr. Þetta gerum við vegna þess að samskiptahæfni er einn af mikilvægustu hæfileikum hvers einstaklings hvort sem er á vinnumarkaði eða í einkalífi.

Þrátt fyrir alla þessa áherslu á samskiptahæfni hafa fáir heyrandi Íslendingar lágmarkskunnáttu í táknmáli. Tölur um heyrnarskerta á Íslandi eru ekki aðgengilegar vegna ósamræmis í því hvar mörk heyrnarskerðingar eru. Þó er vitað að 2% þjóðarinnar nota heyrnartæki og u.þ.b. 10 börn fæðast heyrnarlaus eða heyrnarskert á Íslandi árlega samkvæmt upplýsingum frá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Eins og staðan er í dag fer samfélagið á mis við það sem heyrnarskertir hafa fram að færa með því að gera þeim ekki almennilega kleift að bera sitt á borð til jafns við aðra vegna samskiptamúra.

Samskiptamúrinn brotinn

Nú þegar íslenskt táknmál hefur verið lagalega viðurkennt tel ég því ekkert til fyrirstöðu að færa kennslu í íslensku táknmáli inn í aðalnámsskrá grunnskólanna. Nú er tími til kominn að leiðrétta þetta ójafnrétti, okkur öllum í hag, með því að bjóða börnum upp á kynningu á grunnþáttum táknmálsins og vekja þannig áhuga sem flestra til frekara náms í íslensku táknmáli. Ég tel að Reykjavíkurborg sé í góðri stöðu til þess að sýna frumkvæði í þessu máli með því að bjóða strax á næsta skólaári upp á valkvæð námskeið í táknmáli á meðan ríkisstjórnin og Alþingi vinni að því að gera það að skyldufagi. Samskiptamúrinn er heyrnarlausum ókleifur á meðan þunga sleggjan er ekki tekin fram af þeim heyrandi til þess að brjóta hann niður.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 14. mars 2012

Táknmál inn í aðalnámskrá grunnskólanna
Ályktun frá stjórn Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík:

Á síðasta ári var íslenskt táknmál loksins löglega viðurkennt fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra Íslendinga og afkomenda þeirra.

Stjórn félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík fagnaði þeim tímamótum og hvetur nú stjórnvöld til þess að stíga næsta skref og færa kennslu í táknmáli inn í aðalnámskrá grunnskólanna.

Eins og staðan er í dag er samfélagið að miklu leiti að fara á mis við það sem þessi hópur hefur fram að færa vegna vankunnáttu almennings á táknmáli. Á meðan þeir sem heyrandi eru leggja sig ekki fram við það að læra íslenskt táknmál mun þessi samskiptamúr halda áfram að vera heyrnarlausum ókleifur. Stjórn Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík hvetur því ríkisstjórn Íslands ásamt þinginu öllu að vinna hratt og örugglega að úrbótum í þessu mikilvæga jafnréttismáli á sama tíma og við hvetjum Reykjavíkurborg til þess að sýna frumkvæði og taka kynningu á íslensku táknmáli upp sem valfag í öllum skólum borgarinnar strax næsta haust.

Stjórn FUF-RVK

Vettvangsferð FUF-RVK
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, tekur á móti ungu framsóknarfólki í Alþingishúsinu 8. mars og er mæting kl. 18:45 áAlþingi.

Farið verður í skoðunarferð um Alþingi og ungu framsóknarfólki kynnt störf þess.

Eftir það er opið hús í Framsóknarhúsinu í Reykjavík að Hverfisgötu 33 þar sem í boði verða léttar veitingar.

Stjórn FUF-RVK

Stjórnmálafóbían
Mynd: matt512 (Creative Commons by-nc-nd)

Pólitík er ekki leiðinleg. Þetta er satt, ég var ekki að búa þetta til. Ótrúlega margir vinir mínir þjást af stjórnmálafóbíu. Það er bara eitthvað við orðið sem fær þau til að æla uppí sig og byrja að klæja útum allan líkamann. Mér finnst þetta ákaflega einkennilegt ofnæmi.

Litlu bræðrum mínum sem verða 12 ára á þessu ári finnst pólitík sjúklega óspennandi. Þeim finnst fáránlegt að ég hafi áhuga á henni og þeir hlógu sig máttlausa þegar þeir komust að því að ég horfi stundum á útsendingar frá Alþingi óumbeðin. Þeir sjá fyrir sér miðaldra karla í jakkafötum að rífast. Málið er það að vinir mínir og fullt af öðru fólki sem þjáist af fóbíunni sér þessa leiðinda karla líka fyrir sér. Ég hef ekkert sérstakan áhuga á karlmönnum í jakkafötum að rífast, þú veist allavega ekkert yfirdrifinn. Ég meina, ég hef áhuga á karlmönnum og þeir eru myndarlegir í jakkafötum. En að þeir séu miðaldra og rífist gerir þá ekki áhugaverðari í mínum augum.

Það er hins vegar þannig að bræður mínir hafa áhuga á samfélags- og þjóðfélagsmálum. Þeir hafa rætt lengi við mig um möguleikana á öðrum orkugjöfum en olíu á bíla. Þeim er annt um umhverfið. Ég hef rætt við þá um lýðræði, þeir voru mjög ósáttir við að atkvæði þeirra hafi ekki vegið þyngra í undakeppni Eurovision. Þeir eru lýðræðissinnar. Og svona gæti ég haldið lengi áfram. Bræður mínir eru þrælpólitískir. Þetta á líka við um flesta aðra sem þjást af stjórnmálafóbíunni.

Ef þú hefur skoðanir á samfélaginu í kringum þig þá er það pólitík. Finnst þér að það eigi að kosta minna að fara til tannlæknis? Það er pólitík. Finnst þér að það eigi að gera göng í gegnum fjallið sem þú þarft svo oft að keyra yfir? Það er pólitík. Finnst þér að námslán ættu ekki að vera lægri en atvinnuleysisbætur? Það er pólitík. Finnst þér að það eigi ekki að leggja þennan göngustíg svona nálægt húsinu þínu? Það er líka pólitík.

Lífið er pólitík og hún er skemmtileg. Það er auðvelt að hafa áhrif og það gerir maður með því að taka þátt. Það er líka skemmtilegt. Ef þú hefur skoðanir á einhverju í samfélaginu okkar skrifaðu þá um þær, mættu á fundi hjá hagsmunasamtökum og stjórnmálaflokkum og talaðu um þær. Það er alltaf einhver að hlusta.

67% vilja ekki ESB
Í gær voru birtar niðurstöður úr nýrri Gallupkönnun, sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins, þar sem afstaða landsmanna til Evrópusambandsaðildar var könnuð. Í niðurstöðunum kemur meðal annars fram að rúm 67% svarenda myndu greiða atkvæði á móti aðild ef gengið yrði til atkvæða nú.

Af þessu tilefni er rétt að hvetja ríkisstjórnina til þess að endurskoða aðlögunarferlið og draga umsókn Íslands til baka svo hægt sé að eyða tíma og fjármagni þjóðarinnar í mikilvægari mál.

Ályktun SUF frá 37. sambandsþingi 2012

,,SUF vill að aðildarviðræðum við ESB verði slitið og umsókn Íslands verði dregin til baka”