Söfn eftir höfundi: Stefán Vignir Skarphéðinsson

Ályktun um meinta hættu á lúxuslífi námsmanna

Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, vill beina því til ríkisstjórnar Íslands og stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna að þær reiknireglur sem LÍN notar til útreikninga á framfærslulánum verði uppfærðar til samræmis við raunveruleg neysluviðmið, sem ríkisstjórnin sjálf hefur látið vinna.

Keilustuð FUF-RVK

Stjórn Félags Ungra Framsóknarmanna í Reykjavík býður í keilu í Keiluhöllinni, Öskjuhlíð til að styrkja böndin og eiga góða stund saman á morgun, 17 mars klukkan 20:00. Vinsamlegast boðið komu ykkar með því að senda mail á gsh8@hi.is eða hafa samband í síma 691-7772. Endilega bjóðið vinum með og munið eftir góða skapinu.

Ókæft Internet, takk fyrir

Í dag tökum við Internetinu sem sjálfsögðum hlut. Við sendum hvoru öðru skilaboð, potum hvert í annað á Facebook, bloggum, sendum SMS og horfum á Rick Astley á YouTube. Internetið er skemmtilegt, gagnlegt og fróðlegt en á sama tíma er Internetið eins og við þekkjum það í dag í hættu.

Námskeið um hlutverk stjórnarmanna

Við viljum vekja athygli á námskeiði sem LÆF, Landssamband æskulýðsfélaga, heldur mánudaginn 26. jan. nk. um hlutverk stjórnarmanna í félagasamtökum.

Þjóðstjórn – Ályktun frá stjórn SUF

Samband ungra framsóknarmanna leggur til að mynduð verði ný ríkisstjórn með þáttöku allra flokka. Ungir framsóknarmenn telja að af öllum mögulegum stjórnarmynstrum sé þjóðstjórn sá kostur sem er best til þess fallinn að fara í nauðsynlegar aðgerðir til bjargar heimilum og fjölskyldum á Íslandi.

Landsdómur – Ályktun frá stjórn SUF

Samband ungra framsóknarmanna harmar að á Alþingi hafi verið komið í veg fyrir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Árni Mattísen þyrftu að standa fyrir máli sínu í réttarsal jafnfætis Geir H. Haarde. SUF harmar að flokkspólitík hafi vegið hærra en sanngjörn málsmeðferð.

SUF starfsárið 2010-2012

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar SUF starfsárið 2010 – 2012 var haldin miðvikudaginn 6 október. Á fundinum var kosið í framkvæmdastjórn og formenn fastanefnda skipaðir.