Söfn eftir höfundi: Stefán Vignir Skarphéðinsson

Ályktun um höfundarréttarmál

Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna samþykkti samhljóða á fundi sínum í kvöld eftirfarandi ályktun: Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna lýsir sig andsnúna tilfæringum höfundarréttarsamtaka þegar kemur að aukinni ritskoðun og gjaldheimtu á Internetinu. Ef þörf er á endurskoðun á höfundarréttarlögum er nauðsynlegt að hlustað sé á allar raddir samfélagsins án þess að ganga á rétt [...]

Boðað til sambandsþings SUF

Hér með er boðað til 37. Sambandsþings Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í Menntaskólanum á Egilsstöðum dagana 11. og 12. febrúar 2012. Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu. Þeir sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn fyrir laugardaginn 14. janúar 2012 á aldrinum 16 til 35 ára og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðarétt á þinginu. [...]

SUF á Norðurlandaráðsþingi æskunnar 2011

SUF býðst að senda fulltrúa á þing Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) á hverju ári. Alþjóðanefnd ákvað á fundi sínum að senda þrjá fulltrúa á þingið sem var haldið í Kaupmannahöfn í ár. Sandra Rán Ásgrímsdóttir formaður nefndarinnar var skráð sem þingfulltrúi; og Stefán Vignir Skarphéðinsson og Agnar Bragi Bragason voru skráðir sem áheyrnarfulltrúar. Allir fulltrúar SUF [...]

Ályktun um smokka

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna áréttar fyrri ályktanir um mikilvægi þess að lækka skatt á smokkum úr 25,5% í 7%. Það er ein þeirra leiða sem eru færar til að gera smokka ódýrari, eins og sóttvarnaráð hefur kallað eftir. Á síðasta ári greindust 24 einstaklingar hér á landi með HIV, fleiri en nokkru sinni áður. Tíðni [...]

Fundur í nefnd um innra starf SUF

Hér með er boðað til fundar í Nefnd um innra starf SUF laugardaginn 8. október kl. 16:00. Allir meðlimir framsóknarflokkins á SUF-aldri eru velkomnir en gott væri að fá staðfestingu frá þeim sem sjá sér fært að mæta. Drög að dagskrá: Breytingar á framkvæmdastjórn SUF Nefndastarf SUF í vetur Nýliðinn formannafundur Störf FUF-félaga Hlutverk nefndarinnar [...]

Fullbókað í vísindaferðir

Hér með tilkynnist að það er fullbókað í vísindaferðir Framsóknarflokksins og SUF bæði fyrir og eftir jól, þannig að því miður getum við ekki tekið við fleiri hópum að sinni. Við munum hinsvegar láta vita ef pláss losnar.

Ný Facebook-síða

SUF hefur opnað nýja Facebook-síðu þar sem sá aðgangur sem SUF hefur notað hingað til var hættur að henta starfseminni og var ekki til samræmis við notkunarskilmála Facebook. Honum verður því lagt á næstunni. Slóðin á nýja síðu SUF er http://www.facebook.com/ungirframsoknarmenn og við vonumst til að sem flestir færi sig þangað yfir.

Vísindaferðir

Framsóknarflokkurinn ætlar sér að taka á móti háskólanemum í sjö vísindaferðum í haust og er að plana fleiri vísindaferðir eftir áramót. SUFarar ætla að vera skemmtilegir og munu taka vísindaferðirnar að sér í samvinnu við skrifstofu og þingflokk flokksins og mun bjóða nemum upp á kynningu á starfinu og glæsilegar veitingar í fljótandi formi. Þingmaður [...]

Ný framkvæmdastjórn SUF kjörin

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna kaus í kvöld nýja framkvæmdastjórn. Ásta Hlín Magnúsdóttir verður starfandi formaður fram að sambandsþingi í byrjun næsta árs. Formaður SUF sagði af sér í síðustu viku en áður höfðu varaformaður og gjaldkeri látið af störfum. Á fundinum samþykkti meirihluti stjórnar SUF að starfa áfram fram að næsta sambandsþingi sem á að [...]

Hádegisfundur um Icesave

Við boðum til hádegisfundar um Icesave fimmtudaginn 31. mars kl. 12:00. Fundurinn verður haldinn í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33, 3. hæð, í Reykjavík. Með framsögu verða Ragnar H. Hall hrl. og Reimar Pétursson hrl. Ragnar H. Hall er einn af átta lögmönnum sem skrifuðu fjölmiðlum bréf nýverið þar sem þeir röktu ástæður þess að þeir [...]