 |
11 / 05 / 2009 | Ritstjórn
Eurovision grillpartý SUF
Samband ungra framsóknarmanna stendur fyrir Eurovision grillpartýi
laugardaginn 16. maí nk. að loknum miðstjórnarfundi flokksins.
Þegar
miðstjórnarfundi lýkur (eða um kl. 18) mun ungt framsóknarfólk kveikja
upp í grillinu að Hverfisgötu 33 þar sem í boði verða hamborgarar,
pylsur og fljótandi veitingar á vægu verði fyrir alla. Eurovision
keppnin verður sýnd á breiðtjaldi á 3. hæðinni og hefst hún kl. 19 en
að lokinni keppni tekur við taumlaus gleði fram eftir kvöldi.
Framsóknarmenn á öllum aldri - fögnum góðum árangri í kosningum saman á laugardagskvöldið í góðum félagsskap.
Ungir framsóknarmenn
|
|
 |
|
|