Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
19 / 04 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Framhaldsskólanemar ættu að kjósa Framsókn í vor

Í vikunni sem leið spurði framhaldsskólanemi mig af hverju hann ætti að kjósa Framsóknarflokkinn. Einfaldri spurningu fylgir langt svar þar sem framhaldsskólanemar eru fjölmennur og margbreytilegur hópur.

18-20 ára einstaklingar eru stærsti hluti þeirra sem hafa kosningarétt í framhaldsskólunum. Sá hópur er að stíga sín fyrstu skref með nýfengin réttindi s.s. lögræði, þ.e. sjálfræði og fjárræði auk annarra réttinda t.d. bílprófs. Kosningastefnuskrá framsóknarmanna í ár snýst í stórum dráttum um fjóra megin málaflokka, þ.e. efnahags-, atvinnu-, lýðræðis- og velferðar- og menntamál.

Menntun og velferð – fyrir okkur öll
Fyrir framhaldsskólanema skiptir menntakerfið e.t.v. mestu máli. Framsóknarmenn hafa ávallt talað fyrir jafnrétti til þátttöku á öllum sviðum samfélagsins. Um það er flokkurinn stofnaður og munum við aldrei víkja frá þeirri stefnu. Allir eiga að geta sótt sér menntun óháð efnahag og búsetu. Skólagjöld við opinbera framhalds- og háskóla koma því ekki til greina. Við viljum tryggja að á næstu árum verði staðinn vörður um framhaldsskólakerfið sem við höfum byggt upp á síðustu árum.

Ungt framsóknarfólk hefur bent á að aðgengi að getnaðarvörnum hefur versnað á síðustu mánuðum. Kynheilbrigðismál eru ungu fólki mjög mikilvægur málaflokkur. Það skiptir miklu máli að aðgengi að getnaðarvörnum sé gott til þess að koma í veg fyrir kynsjúkdómasmit og ótímabærar þunganir. Verð spilar þar stóran part. Á sama tíma og verð á smokkum hefur hækkað um 45% hefur salan á þeim dregist saman um 25% samkvæmt tölum sem birtust í fréttum undir lok síðasta árs. Samtöl okkar við innflytjendur staðfesta þessa þróun sem er þvert á það sem er að eiga sér stað í nágrannalöndum okkar.

Lækkun á virðisaukaskatti á getnaðarvörnum er leið til þess að draga úr útgjöldum til heilbrigðismála. Komi til þess að ótímabærum þungunum fjölgi og kynsjúkdómasmitum einnig sem veruleg hætta er á mun það leiða til mun meiri kostnaðar á heilbrigðiskerfinu. Hér er því um þjóðhagslega arðsama aðgerð að ræða.

Atvinna – fyrir okkur öll

Nú veit ég ekki hvort framhaldsskólaneminn sem spurði mig spurningarinnar sem ég nefndi í upphafi sé kominn  með vinnu í sumar en útlit er fyrir að allt að 70% framhaldsskólanema fái ekki vinnu í sumar. Það er óásættanlegt og hafa framsóknarmenn rætt um að koma á fót sumarskólum, sumarönnum og að ráðast í átaksverkefni til þess að stúdentum bjóðist vinna. Við þurfum að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað og hafa framsóknarmenn kynnt ítarlegar efnahagstillögur með það að markmiði. Það þarf nefnilega að skapa verðmæti til þess að hægt sé að halda úti mennta-, heilbrigðis- og félagslega kerfinu, byggja vegi, tryggja öruggar samgöngur o.s.frv.

Atvinnumálin eru betur útskýrð í þessu myndbandi.

Vonandi hefur þú einnig heyrt hugmyndina um 20% leiðréttingu lána. Sú hugmynd er útskýrð hér.

Réttlæti – fyrir okkur öll
Í réttlætis og lýðræðismálum þá hafa framsóknarmenn barist fyrir því að samin verði ný stjórnarskrá. Við viljum ekki að þingmenn geri það heldur á þjóðin sjálf að velja sér sína fulltrúa til þess á stjórnlagaþing. Annað réttlætismál fyrir 18-20 ára einstaklinga er að fá að versla sér áfengi. 18 ára einstakling er treystandi til þess að bera ábyrgð á lífi sínu og annarra í umferðinni, hann má taka lán og gifta sig. Þar sem hann er með kosningarétt hefur hann allan rétt til þess að ákveða hvort opna eigi áfengisútsölu í viðkomandi sveitarfélagi ef kosning um slíkt færi fram. honum er bara ekki treyst til þess að versla með áfengi.

Framsóknarmenn hafa líka gert myndband um lýðræðismál og má finna það hér.

Að lokum get ég bætt því við að forysta Framsóknarflokksins er sú yngsta í íslenskum stjórnmálaflokki. Formaður flokksins er aðeins 34 ára gamall og varaformaðurinn 29 ára. Þá er meðalaldur þingflokksins sá lægsti á þingi. Framsóknarmenn hafa alltaf tekið tillit til ungs fólks og hlustað á skoðanir þeirra. Ungt fólk hefur því áhrif innan flokksins.

Hér tel ég upp nokkrar ástæður fyrir því af hverju framhaldsskólar ættu að kjósa Framsóknarflokkinn. Þeir sem hafa spurningar um efnið sem hér kemur fram eða annað sem við kemur kosningunum geta ávalt leitað á kosningaskrifstofur flokksins um allt land. Þar er tekið vel tekið á móti öllum.

Eggert Sólberg Jónsson
varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is