Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
16 / 03 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
40 dagar

Í gær röðuðu framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi upp á sinn framboðslista fyrir komandi þingkosningar. Þar með er ljóst hverjir skipa efstu sæti á listum Framsóknarflokksins í öllum kjördæmum. Það er ánægjuefni að á fjórum listum af sex er SUF-ari í einu af fjórum efstu sætunum.  
Staða ungs fólk er mjög góð í Reykjavíkurkjördæmi norður. Þar leiðir listann formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (33 ára). Á eftir honum koma svo tveir SUF-arar, Ásta Rut Jónasdóttir (35 ára) og Þórir Ingþórsson (31 árs).  

Formaður SUF, Bryndís Gunnlaugsdóttir (28 ára) er í fjórða sæti listans í Suðurkjördæmi og Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson (34 ára) er í þriðja sæti í Norðvesturkjördæmi. Birkir Jón Jónsson (30 ára), varaformaður flokksins leiðir svo framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi.

Eftir grófa yfirferð á framboðslistum annarra flokka sé ég ekki að ungt fólk hafi fengið meiri framgang þar en á listum Framsóknarmanna. Sannast það þá enn og aftur að framsóknarmenn treysta ungu fólki fyrir ábyrgðarhlutverkum umfram stuðningsmenn annarra flokka.

Það mun mikið mæða á þessu unga fólki í kosningabaráttunni og mikilvægt að þétt sé staðið við bakið á því. Ungt fólk mun koma til með að bera miklar birgðar í kjölfar efnahagshrunsins og því er nauðsynlegt að raddir þeirra fái að heyrast á Alþingi. Það getum við gert mögulegt með því að kjósa Framsóknarflokkinn í vor.

Kosningabaráttan nú verður frábrugðin mörgum fyrri baráttum. Hún verður stutt og snörp. Ekki verður lagt út í mikinn kostnað við auglýsingar í fjölmiðlum heldur verður áhersla lögð á að virkja það tengslanet sem til staðar er í flokknum. Þar skiptir þú miklu máli. Við þurfum á þinni hjálp að halda til að koma hugsjónum Framsóknarflokksins til skila.
Ef þú vilt leggja okkur lið er hægt að senda póst á suf@suf.is. Verkefnin bíða stór og smá þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  
Hugmyndasmiðja SUF sem fram fer næsta fimmtudag kl. 20:00 að Hverfisgötu 33 er einnig kjörið tækifæri til að láta til sín taka. Þar fer fram umræða um málefni ungs fólks í kosningabaráttunni. Dagskráin verður nánar auglýst þegar nær dregur.

Ég hlakka til að sjá þig í baráttunni.
Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is