 |
02 / 03 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Ráðþrota ríkistjórn
Fyrir viku síðan kynnti forysta Framsóknarflokksins á blaðamannafundi tillögur til úrbóta í efnahagsmálum þjóðarinnar. Eins ótrúlegt og það kann að hljóma eru þetta einu útfærðu tillögurnar í atvinnu- og efnahagsmálum sem íslenskur stjórnmálaflokkur hefur lagt fram til þess að ráða bót á þeirri stöðu sem uppi er í dag, þ.e. að mögulega verði hér kerfishrun, fyrirtækin í landinu eru að klára sitt eigið fé og heimilin eru að kanna hvernig best er að fara í þrot. Maður hefði því haldið að aðrir stjórnmálaflokkar kæmu til með að fagna þeirri vinnu sem framsóknarmenn höfðu lagt í en nei, annað kom á daginn.
Jóhanna Sigurðardóttir var fyrst til þess að tjá sig um tillögurnar. Bersýnilega hafði hún ekki kynnt sér þær þegar hún gaf út þá yfirlýsingu að Íbúðalánasjóður færi „lóðbeint á hausinn“. Hefði hún lesið tillögurnar vissi hún að nýju bankarnir fengu á sínum tíma lánasöfn gömlu bankanna með verulegum afslætti eða 50%. Með því að færa lánin yfir til Íbúðalánasjóðs á sama verði er tryggt að sú niðurfelling sem þegar hefur átt sér stað skili sér til skuldara.
Steingrímur J. segir nú eins og svo oft áður „ekki þetta heldur eitthvað annað“. Það væri áhugavert að vita hvað Steingrímur J. vill í raun og veru gera fyrir heimilin og atvinnulífið? Ekki veit ég það þar sem hann hefur lítið látið hafa eftir sér um það annað en innantóma frasa sem lítið gagn er af. Nú styttist óðum í þinglok og rétt væri að krefja fjármálaráðherra og formann Vinstri grænna svara hverjar hans tillögur eru.
Viðskiptaráðherra gagnrýndi flata niðurfellingu eins og tillögurnar gera ráð fyrir. Hinn kosturinn sem ráðherrann mælir fyrir er að hvert og eitt tilvik er metið fyrir sig. Slíkt umhverfi mun skapa jarðveg fyrir spillingu þar sem sumir fá skuldaniðurfellingu en aðrir ekki. Þá hafa stjórnvöld hvorki tíma né getu til þess að leggja mat á stöðu hvers einasta heimilis og fyrirtækis í landinu.
Það má að auki halda því fram að með flatri niðurfellingu skulda eykst eigið fé vel staddra fyrirtækja og svigrúm skapast til þess að kaupa upp verr stödd fyrirtæki. Þau geta þá aukið áherslu sína á nýsköpun og komið í veg fyrir uppsagnir starfsfólks sem hefðu komið til ef verr stadda fyrirtækið færi í þrot.
Það sama gildir um heimilin. Þeir sem ekki skulda neitt eða skulda lítið kunna að vera ósáttir við að þeir sem mesta áhættu tóku fái meiri fyrirgreiðslu en aðrir. Það er hins vegar svo að ef gengið verður að þeim mest skuldsettu í götunni og húsin tekin að þeim mun fasteignaverð hrynja og vandamálin færast yfir á aðra, fleiri lenda í vandræðum og svo koll af kolli. Tillögur framsóknarmanna miða að því að bjarga hinum verst stöddu og koma til móts við hina.
Það ætti öllum að vera orðið ljóst að ríkisstjórnin er ráðþrota í efnahagsmálum. Frá henni koma engar tillögur til þess að leysa vanda heimilanna. Frá henni koma engar tillögur til þess að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað. Framsóknarmenn eiga að kalla eftir þessum tillögum enda voru þær forsenda þess að flokkurinn ákvað að verja stjórnina vantrausti. Ef engar tillögur koma á ríkisstjórnin að viðurkenna vanmátt sinn gagnvart þessu verkefnum.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
|
|
 |
|
|