 |
23 / 02 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Góðar tillögur - Frumkvæði Framsóknarflokksins
Á blaðamannafundi fyrr í dag kynnti forysta Framsóknarflokksins tillögur til úrbóta í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þar kennir ýmissa grasa en allar miða tillögurnar að því að bæta hag heimilanna, efla atvinnulíf og endurreisa bankakerfið.
Fyrir heimilin í landinu ber það hæst að gerð er tillaga um 20% skuldaniðurfellingu vegna allra húsnæðislána. Sú aðgerð mun koma til með að létta greiðslubyrði fólks og fyrirtækja auk þess sem hún gefur fólki aukið svigrúm til að greiða af öðrum lánum en húsnæðislánum. Þannig eykur aðgerðin flæði fjármagns í hagkerfinu.
Önnur aðgerð sem kemur heimilunum til góða er hækkun hámarkslána íbúðalánasjóðs í 30 milljónir um leið og lánshlutfallið er lækkað í 70%. Lánshlutfall á ódýrari eignum yrði þó áfram 80% til þess að koma til móts við þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Stimpilgjöld yrðu sömuleiðis afnumin án tafar.
Það er augljóst að lækkun vaxta er nauðsynleg aðgerð til þess að koma efnahagslífinu aftur í gang. Í efnahagstillögum Framsóknarflokksins er lagt til að stjórnvöld kynni Alþjóðagjaldeyrissjóðnum upplýsingar um samsetningu verðbólgu og sýni þannig fram á að ástæðulaust er að hafa áhyggjur af áhrifum vaxta á verðbólgu við núverandi aðstæður. Ekki eru fyrirsjáanlegir neinir verðbólguhvatar í kerfinu, þvert á móti er ástæða til að óttast verðhjöðnun þegar líða tekur á árið.
Eignir erlendra aðila í íslenskum krónum skapa þrýsting á gjaldmiðilinn. Á meðan þessi þrýstingur er til staðar er ekki hægt að afnema gjaldeyrishöft. Það er rétt að gefa erlendum aðilum tækifæri til þess að semja um að þeir losi eignir sínar á ásættanlegu verði. Einnig er lagt til að Seðlabankinn komi á fót uppboðsmarkaði með íslenskar krónur til þess að létta enn frekar á þrýstingnum sem flýtir fyrir afnámi gjaldeyrishafta. Seðlabankinn myndi þannig óska eftir því að kaupa krónur fyrir gjaldeyri og þátttakendur myndu þá greina frá því á hvaða verði þeir vilja selja sínar krónur.
Það mun einnig koma atvinnulífinu til góða að fyrirtæki fái skattaafslátt vegna rannsóknar- og þróunarstarfs. Þeim verði þannig gert heimilt að draga tvöfaldan kostnað við rannsókna- og þróunarstarf frá skatti. Einnig er lagt til að komið verði á fót formlegum samráðsvettvangi útflutningsfyrirtækja og ríkisins til þess að koma í veg fyrir flótta þeirra úr landi.
Tillögurnar gera ráð fyrir að vinnu við að skilja að gömlu og nýju bankana verði hraðað. Það að stofnefnahagsreikningar bankanna liggi fyrir er forsenda þess að þeir geti sinnt hlutverki sínu við að þjónusta heimili og fyrirtæki. Í kjölfarið þarf að ráðast í endurskipulagningu bankakerfisins, sameina stofnanir og hleypa kröfuhöfum að rekstri þeirra.
Margt fleira má finna í tillögum flokksins, t.d. er rætt um að ríkið ábyrgist lán milli fjármálastofnana til skamms tíma, hlutafélögum verði gert kleyft að skrá hlutafé í erlendri mynt, ríkið verði bakhjarl vegna fjármögnunar útflutnings og drög verði gerð að fjárlögum til ársins 2012. Það er verkefni næstu daga, vikna og mánaða að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot heimila og fyrirtækja. Tillögurnar sem hér hefur verið rætt um miða að því. Framsóknarflokkurinn hefur einn flokka lagt fram slíkar tillögur. Nú bíður maður spenntur eftir því að sjá hvort aðrir stjórnmálaflokkar styðji góð mál.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
|
|
 |
|
|