Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
16 / 02 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Geislavirkur úrgangur

Spunavélarnar frambjóðenda og stjórnmálamanna eru nú farnar af stað enda líður senn að þingkosningum. Eins og venjulega mun Framsóknarflokkurinn fá sinn skammt af spuna en heldur eru fyrstu klæðin sem koma úr vélum andstæðinganna götótt og ekki mjög skjólgóð.  

Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var t.d. gefið í skyn að í Seðlabankanum færu nú fram óformlegar viðræður milli forystumanna í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum um ríkisstjórnarsamstarf eftir næstu kosningar. Þetta er nokkuð langsóttur spuni hjá fréttastofunni en ástæða „fréttarinnar“ er heimsókn fyrrverandi borgarfulltrúa  Framsóknarflokksins í Seðlabankann þar sem hann heimsótti dóttur sína sem vinnur á sömu hæð og formaður bankaráðs.  

Það er engum hollt að vera of lengi við völd. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í ríkisstjórn síðustu 18 ár og hefur gott af hvíldinni frá ríkisstjórn sem hann kemur vonandi til með að fá á næstunni. Hann þarf á endurnýjun að halda, bæði hvað varðar mannafla og hugmyndafræði. Það sást á framtaks- og aðgerðaleysi flokksins í ríkisstjórn eftir hrun bankanna sem og á þingmönnum flokksins í stjórnarandstöðu nú.  
Fyrsta starfsdegi þingsins eftir að ný ríkisstjórn tók til starfa eyddu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í væl vegna þess að ekki stæði til að kjósa þingmann þeirra sem forseta Alþingis. Öðrum deginum eyddu þeir í karp við Samfylkinguna um hvor flokkurinn hefði verið duglegri að vinna í frumvarpi um greiðsluaðlögun í ríkisstjórn þó svo það lægi fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hefði í gegnum tíðina einn flokka ekki sýnt neinn áhuga á því máli.  

Næst tóku þingmennirnir knáu í Sjálfstæðisflokknum upp á að mótmæla því að gerðar væru breytingar á yfirstjórn Seðlabankans þó það lægi fyrir að Íslendingar væru aðhlátursefni erlendis fyrir að hafa ekki gert breytingar innan stjórnkerfisins eftir bankahrunið í október. Þær breytingar sem ráðast þarf í eru ekki pólitískar hreinsanir eins og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur gefið í skyn. Það er nauðsynlegt að ráðast í þær til þess að skapa traust á íslensku efnahagslífi.  
Ástæðan þess að frétt Stöðvar 2 í gær er spuni er sú að engar viðræður hafa átt sér stað að hálfu Framsóknarflokksins við Sjálfstæðisflokkinn, hvorki formlegar né óformlegar. Það hefði verið hægt að fá staðfest með einu símtali. Maður spyr sig hvers vegna það var ekki gert? Jú, fréttinni var ætlað að koma höggi á Framsóknarflokkinn sem verið hefur í uppsveiflu síðustu vikur enda er Sjálfstæðisflokkurinn í dag líkt og geislavirkur úrgangur, eitthvað sem enginn vill koma nálægt.  

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is