 |
09 / 02 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Nektardans á Alþingi
Þó svo hér á landi ríki efnahagskreppa og umræðan um afleiðingar hennar dekki stóran hluta fréttatíma, dagblaða og umræðna á kaffistofum megum við ekki gleyma öðrum málum sem þörf er að taka á. Fyrir þingi liggja fjölmörg þingmannamál sem eftir á að taka til umræðu. Þar kennir ýmissa grasa og er frægasta málið líklega um sölu áfengis í matvörubúðum sem til stóð að ræða á fyrsta þingdegi eftir jólafrí.
Sé farið í gegnum þykkan bunka þingmannafrumvarpa kemur í ljós frumvarp sem Siv Friðleifsdóttir, þingkona framsóknarmanna er einn flutningsmanna að. Það snýr að breytingum á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Í frumvarpinu er gerð sú tillaga að felld verði á brott undanþáguheimild til nektarsýninga í atvinnuskyni á veitingastöðum.
Í dag er óheimilt að bjóða upp á nektarsýningar, gera út á nekt starfsmanna eða annarra sem á skemmtistöðum eru, þó með þeirri undantekningu að sveitastjórn, heilbrigðisnefnd, slökkvilið, vinnueftirlit, byggingafulltrúi og lögregla veiti jákvæða umsögn um slíkt. Þeir staðir sem fengið hafa jákvæða umsögn mega bjóða upp á nektardans í atvinnuskyni. Sýnendum er samt sem áður bannað að fara um á meðal áhorfenda auk þess sem hvers konar einkasýningar bannaðar.
Þann 28. ágúst sl. samþykkti borgarráð Reykjavíkur samhljóða að vinna beri gegn klámvæðingu auk þess sem skorað er á Alþingi að breyta lögum þannig að hægt sé að koma í veg fyrir starfsemi nektardansstaða. Borgarstjórn leggur til ákveðna sáttaleið. Í stað þess að banna nektardans með lögum er hverju sveitarfélagi veitt heimilt að ákveða hvort nektardans sé stundaður innan marka þess.
Sveitarfélög geta í dag bannað starfsemi nektardansstaða í gegnum aðal- og deiliskipulag þegar sótt er um leyfi fyrir slíka staði í fyrsta skipti. Enginn ágreiningur er uppi um það. Öllu flóknara mál er að endurnýja ekki leyfi þeirra staða sem þegar eru í rekstri. Þegar rekstur er í samræmi við gildandi aðalskipulag er ekki hægt að synja rekstraraðila um áframhaldandi rekstrarleyfi. Sama hvort farin verður sú leið að banna nektardans alfarið eins og lagt er til í frumvarpinu sem liggur fyrir þinginu eða sveitarfélögum gert heimilt að banna starfsemi nektardansstaða þá næst sá árangur sem stefnt er að.
Jafnvel þó svo ég sé alla jafna frekar frjálslyndur og á móti boðum og bönnum þá eru þau rök sem færð hafa verið fyrir því að banna nektardans sterkari en þau sem mæla með dansinum að mínu mati. En það er efni í annan pistil að telja upp þá ólöglegu hliðarstarfsemi sem gjarnan er fylgifiskur slíkrar starfsemi auk þess að fara í gegn um þau rök sem mæla gegn því að slíkir staðir séu í miðborg Reykjavíkur.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
|
|
 |
|
|