Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
02 / 02 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Framsóknarflokkurinn kom hreyfingu á hlutina

Árið er 1991. Varsjárbandalagið er enn til, það er ekki til neitt internet, Víkingur verður íslandsmeistari í fótbolta, Terminator 2 er tekjuhæsta kvikmyndin, Chicago Bulls sigra NBA deildina í fyrsta sinn, Boris Yeltsin er kosinn forseti Rússlands og „grunge“ tónlist slær í gegn með Nirvana laginu „Smells Like Teen Spirit“. Þetta ár settist Sjálfstæðisflokkurinn líka í ríkisstjórn á Íslandi og hefur setið þar sem fastast allt þar til í gær. Það var því nokkuð merkilegur atburður sem átti sér stað í gær þegar ný ríkisstjórn tók til starfa.  
Á síðustu vikum hef ég fengið að fylgjast með nýrri forystu Framsóknarflokksins vinna að því samkomulagi sem nú liggur fyrir milli Framsóknarflokksins og nýrra stjórnarflokka um að . Ég get ég fullvissað þá sem þetta lesa um það samningaviðræðurnar gengu ekki þrautalaust fyrir sig og þurfti ung og óreynd forysta flokksins að yfirstíga margar hindranir á leið sinni að settu marki. Ef ekki hefði verið fyrir einstaka forystuhæfileika, útsjónarsemi og þrautseigju þá væri Sjálfstæðisflokkurinn enn við völd.  

Forysta flokksins og þingflokkur á hrós skilið fyrir samheldnina á þessum erfiðu tímum. Ég vil samt að öðrum ólöstuðum sérstaklega hrósa sérstaklega Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans innkomu. Hann hefur staðið sig sérstaklega vel í viðræðum við forystumenn annarra flokka sem og í fjölmiðlum síðustu daga.  

Sigmundur krafðist þess af fyrrverandi ríkisstjórn að hún kæmi fram með trúverðugar lausnir á vanda heimila og fyrirtækja. Þær kröfur sem hann hefur gert til nýrrar ríkisstjórnar eru þær nákvæmlega sömu. Framsóknarmenn krefjast aðgerða og tillagna að leiðum að settum markmiðum. Falleg kosningaloforð í stjórnarsáttmála er ekki nóg. Þess vegna segi ég að framsóknarmenn eru heppnir að hafa slíkan mann í forystu flokksins.  
Framsóknarflokkurinn verður ekki stjórnarflokkur næstu mánuðina. Það er framsóknarmönnum þó mikilvægt að hafa í huga að það var Framsóknarflokkurinn sem kom hreyfingu á hlutina. Ég er þess fullviss að ef ekki hefði verið fyrir tilboð þingflokks framsóknarmanna um að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna falli þá væri Sjálfstæðisflokkurinn enn við völd og sundruð Samfylkingin væri enn að rembast við að vera bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Þá værum við ekki að fara kjósa 25. apríl nk., ekki stæði til að semja nýja stjórnarskrá og síðast en ekki síst þyrftum við að horfa upp á aðgerðaleysi í efnahagsmálum þjóðarinnar í marga mánuði í viðbót.  
Vegna þess að nú sjáum við fram á breytingar fagna ég því samkomulagi sem náðst hefur. Um leið lýsi ég vissulega yfir áhyggjum enda er stjórnarsáttmálinn ekki eins og við framsóknarmenn hefðum viljað hafa hann. Framsóknarmenn komu ekki að gerð hans og sést það best á því að ekki kemur þar skýrt fram hvernig ná á settum markmiðum. Það er gagnrýnivert þar sem stuttur tími er til stefnu áður en þingi verður slitið og kosningabaráttan hefst.

Ég legg nú traust mitt á þann góða hóp sem leggur á sig mikið og óeigingjarnt starf fyrir Framsóknarflokkinn á hverjum einasta degi, þeir sem hafa starfað til lengri tíma og hafa reynsluna, þeir sem hafa gengið til liðs við okkur á síðustu vikur en síðast en ekki síst þingflokkurinn og forysta flokksins. Eins og framsóknarmenn hafa staðið sig síðustu daga þá veit ég að þeir munu veita nýrri stjórn öflugt aðhald og halda uppi málefnalegri gagnrýni. Þannig munum við uppskera ríkulega í vor.
Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is