Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
26 / 01 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Kjósum í apríl

Þegar þetta er skrifað er alls óvíst hvort ríkisstjórnin eigi marga klukkutíma eftir af sinni ævi. Það er hins vegar ljóst að verulegir brestir eru í komnir í samstarf manna bæði milli flokkanna og innan þeirra. Nú er staðan orðin þannig að hver og einn hugsar um að bjarga eigin skinni til þess að eiga möguleika á því að ná endurkjöri.  

En pistillinn í dag átti að fjalla um kosningar. Í rúmlega 110 daga hefur fólk krafist þess að boðað verði til kosninga á vormánuðum. Þessi krafa um kosningar náði loks eyrum forsætisráðherra í síðustu viku. Hann sagði vilja Sjálfstæðisflokksins vera þann að boðað yrði til kosninga 9. maí. Ég efast um að hægt hafi verið að velja verri kjördag.  

9. maí eru flestir námsmenn í prófum eða í verkefnaskilum. Með því að kjósa á þessum tíma gefst námsmönnum minni tími til þess að beita sér í baráttunni. Það kemur örugglega til með að hjálpa ríkjandi öflum enda hef ég ekki trú á því að ungt fólk í námi hafi áhuga á því að kjósa yfir sig ráðalausan Sjálfstæðisflokk eða sundurlausa Samfylkingu.  

Það að kjósa í miðjum prófatíma leiðir til þess að námsmenn eiga erfiðara með að sækjast eftir baráttusætum á lista, að námsmenn geti ekki tekið virkan þátt í kosningabaráttunni auk þess sem námsmenn hafa minni tíma til að kynna sér þá flokka sem í boði eru og þá stefnu sem þeir standa fyrir. Kannski var þessi dagsetning valin m.a. vegna þessa?

Það kemur mér þó á óvart að aðeins einn maður hafi bent á það í fjölmiðlum svo ég viti til hversu illa þessi dagsetning hentar námsmönnum. Það er hinn nýkjörni formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugson. Eins og hann hefur bent á er miklu heppilegra að kjósa í apríl. Þá gætu allir verið með.  

Kjósum í apríl og kjósum rétt!

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is