Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
19 / 01 / 2009 | Eggert Sólberg Jónsson
Lifi byltingin!

Okkur tókst það og ungt fólk í framsóknarflokknum brosir út að eyrum. Á leið út úr Valsheimilinu á Hlíðarenda seint í gærkvöldi þegar búið var að ganga frá eftir 30. flokksþing framsóknarmanna sagði einn SUF-ari við mig: „Við þurfum að gera þetta oftar“. „Hvað þá?“ spurði ég á móti. „Að bylta stjórnmálaflokkum“ segir þá SUF-arinn. Það var ekki fyrr en þá sem ég áttaði mig á því hvað í raun og veru hafði gerst um helgina. Ungt fólk sem krafðist breytinga hafði gert byltingu í þessum elsta stjórnmálaflokki landsins. 
„Það eru óvenjulegir tímar og fólk virðist tilbúið til óvenjulegra hluta“ sagði nýr formaður flokksins þegar hann gaf kost á sér. Hann hafði rétt fyrir sér. Meðalaldur nýrrar forystusveitar flokksins er aðeins 33 ár og verður það að teljast óvenjulegt í íslenskum stjórnmálum.  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður er aðeins 33 ára SUF-ari. Hann er yngsti formaður flokksins frá upphafi. Birkir Jón Jónsson, varaformaður er 29 ára SUF-ari. Eygló Harðardóttir, ritari er 36 ára og nýskriðin af SUF-aldri.  

Þegar við sem nú erum í forsvari fyrir SUF ákváðum að gefa kost á okkur til þeirra starfa var það fyrst og fremst vegna þess að við sáum að breytinga var þörf á flokknum. Við vorum komin með nóg af hinum og þessum vinnubrögðum sem viðgengist höfðu meðal allra stjórnmálaflokka á Íslandi. Við heyrðum kall grasrótarinnar eftir breytingum, kalli sem ekki hafði verið hlustað á. Við sáum að byltingar var þörf.  
Mikill meirihluti þeirra flokksmanna sem við heyrðum í var okkar framtíðarsýn sammála þó vissulega hafi ekki allir jafn sáttir við þá gagnrýni sem við héldum uppi eins og frægt er. Sumir létu okkur fá það óþvegið, réðust að mannorði okkar og kölluðu okkur illum nöfnum. Við höfum hins vegar breitt bak og héldum ótrauð áfram enda vissum við að það yrði að ráðast í sársaukafullar aðgerðir. Það skyldi hins vegar ekkert stoppa okkur í því að koma Framsóknarflokknum aftur á þann stall sem flokkurinn á að vera á í íslenskum stjórnmálum. Hafi einhver efast um að SUF væri á réttri braut þá hlýtur sá hinn sami að hafa skipt um skoðun um helgina.

Við kröfðumst breytinga á forystu flokksins. Við kröfðumst líka breytinga á vinnubrögðum innan flokksins og var stigið stórt skref á þinginu í þeim efnum. Þannig er kjördæmissamböndum nú heimilt að opna kjördæmisþing sín öllum félagsmönnum. Þá verður skipuð nefnd til þess að endurskoða það fulltrúalýðræði sem nú er við lýði innan flokksins í tengslum við flokksþing og kjördæmaþing. Önnur nefnd verður síðan skipuð til þess að setja flokknum siðareglur.
Bylting unga fólksins byrjaði í Framsóknarflokknum. Ljóst er að siðbótar er þörf í íslenskum stjórnmálum og fylgja vonandi allir stjórnmálaflokkar í fótspor þessa síunga flokks.  

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is