 |
17 / 11 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Fuglaskoðunarhúsið
Þann 30. október sl. birtist á heimasíðu Framsóknarfélags Mosfellsbæjar (mosfellsfrettir.is) frétt þess efnis að byggingarkostnaður fuglaskoðunarhúss í Leiruvogi sem Mosfellsbær byggði í ár hafi farið langt fram úr fjárheimildum. Forseti bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Mosfellsbæ tók þessa frétt upp á bloggsíðu sinni og segir hana vera sorglega. Að öðru leyti svarar hann ekki þeirri gagnrýni sem snýr að honum og meirihluta sveitarstjórnar.
Kostnaðaráætlun fyrir fuglaskoðunarhús í Leiruvogi var lögð fram á fundi atvinnu- og ferðamálanefndar þann 1. apríl sl. Áætlaður kostnaður við húsið sjálft var 250 þúsund krónur en nefndin óskaði jafnframt eftir 600 þúsund króna fjárveitingu til þess að standa straum af kostnaði við að láta útbúa og koma fyrir myndum og söguskrifum um þær fuglategundir sem hafa viðkomu í Leiruvogi. Um þetta voru allir fulltrúar í nefndinni sammála.
Það var ekki fyrr en á fundi bæjarstjórnar þann 22. október sl. að það upplýstist fyrir tilviljun að kostnaður við húsið hefði farið langt fram úr heimildum og endað í á fjórðu milljón. Verkefnið fór mörg hundruð prósent fram úr áætlun og engin heimild var fyrir framúrkeyrslunni. Það upplýstist þó að millifært hefði verið á milli liða í fjárhagsáætlun og m.a. teknir peningar úr undirbúningi að fyrirhuguðum ævintýragarði.
Málið er allt hið ótrúlegasta og kjörnum fulltrúum meirihlutans sem komu að því ekki til sóma. Hvað varðar vindhögg forseta bæjarstjórnar þá er ekkert sorglegt við það að við framsóknarmenn gerum athugasemdir við það hvernig með fé úr sjóðum Mosfellsbæjar er farið. Það er fullkomlega eðlilegt að gagnrýna það þegar verk fer mörg hundruð prósent fram úr kostnaðaráætlun og hlýtur maður að spyrja hvernig slíkt gat gerst.
Ég vil hins vegar að lokum óska áhugasömu fuglaskoðunarfólki til hamingju með þá aðstöðu sem það hefur nú fengið í Leiruvogi enda er stærsta fæðuöflunarsvæði vaðfugla á höfuðborgarsvæðinu. Þá skapast í tengslum við það mörg tækifæri til þess að efla kennslu í náttúru- og umhverfisfræðum í Mosfellsbæ.
Eggert Sólberg Jónsson
Varformaður SUF og fulltrúi Framsóknarflokksins í atvinnu- og ferðamálanefnd Mosfellsbæjar
Greinin birtist í Mosfelling 14. nóvember 2008
|
|
 |
|
|