 |
10 / 11 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Heimskum hvítum körlum gefið frí
Fyrir nokkrum árum gaf bandaríski kvikmyndagerðamaðurinn Michael Moore út bókina „Stupid White Men ...and Other Sorry Excuses for the State of the Nation!“. Gerði hann þar miklar athugasemdir við þá áráttu Bandaríkjamanna að kjósa sér hvað eftir annað hvíta karla sem forseta. Nú hefur orðið breyting þar á.
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í liðinni viku voru sögulegar af mörgum ástæðum. Flestir vita að nýkjörinn forseti er fyrsti hörundsdökki maðurinn til þess að gegna embættinu. Í raun gerðist það þarna í fyrsta sinn að þjóð þar sem hvítir eru meirihluti íbúa kusu sér hörundsdökkan forseta. Það var samt ekki fyrr en árið 1964 sem bandaríkjamenn féllu frá aðskilnaðarstefnu sinni en til þess tíma höfðu hvítir menn brotið stórlega á mannréttindum hörundsdökkra.
Þó sigur Obama hafi verið nokkuð sannfærandi benti Pulitzer verðlaunahafinn Nicholas D. Kristof á það í pistli í New York Times fyrir um mánuði síðan að líklega væri Obama með 6% meira fylgi ef hann væri hvítur. Kostirnir í kosningum væru óljósir og gagnstæð rök væru sett fram. Við þær aðstæður væru hvítir kjósendur líklegri til þess að mismuna svörtum.
Niðurstöðurnar sýna að enn eru kynþáttafordómar til staðar í Bandaríkjunum í einhverjum mæli þó dregið hafi úr þeim. Níundi hver ungur hörundsdökkur situr t.d. í fangelsi og hörundsdökkir hafa aðeins 75% af launum hvítra. Obama hefur síðan sjálfur sagt frá því er hann beið fyrir utan veitingastað eftir að þjónninn skilaði honum bílnum sínum hafi ungt hvítt par kastað til hans lyklunum af þeirra bíl.
Mótframbjóðendur Obama notuðu framandi uppruna hans til þess að sá fræjum efasemda hjá þjóðhollum Bandaríkjamönnum. Litarhaftið var ekki einungis notað heldur var fólki bent á nafnið og reynt var að tengja hann við hryðjuverkasamtök eða aðra öfgahópa. Sem betur fer tókst þessi aðför ekki upp.
Aðrir gagnrýnendur hans sögðu hann reynsluausann sem stjórnmálamann auk þess sem hann hefði aldrei fengist við rekstur að neinu tagi. Þannig maður gæti ekki orðið forseti Bandaríkjanna. Það hlýtur þó að segja sitt um hæfileika hans til þess að gegna embættinu að hann lagði af velli magnaða kosningamaskínu Clinton hjónanna og seinna vél hægrisinnaðra repúblikana.
Við getum sagt að Barack Obama hafi lifað ameríska drauminn. Hann vann sig upp úr fátækt og var tiltölulega óþekktur þegar hann flutti ræðu á flokksþingi demókrata fyrir fjórum árum síðan. Hann vann þar hug og hjörtu þingfulltrúa og annara sem fylgdust með þinginu. Þar sýndi hann heimsbyggðinni að á ferðinni er einstaklega góður ræðumaður sem býr yfir miklum persónutöfrum.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
|
|
 |
|
|