Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
03 / 11 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Yngjum upp

Það er áhyggjuefni að ungt fólk er sá þjóðfélagshópur sem líklega kemur til með að fara hvað verst út úr því efnahagsumróti sem nú á sér á sér stað. Á móti má hins vegar segja að ungt fólk hefur mörg  verkfæri í hendi sér til þess að vinna sig út úr þeim ógöngum sem Íslendingar eru nú komnir í.  

Eftir að hafa fjárfest í þaki yfir höfuðið þegar fasteignaverð var í hæstu hæðum situr margt ungt fólk nú uppi með fasteignir sem lækka í verði á meðan lánin hækka. Þetta sama unga fólk er að koma sér upp fjölskyldu, er með jafnvel með barn/börn á leikskóla og greiðir af námslánum svo eitthvað sé nefnd.  

Framtíðin er í höndum þeirra sem eru á aldrinum 20-40 ára. Þeir sem tilheyra þessum aldurshópi eiga að fá það verkefni að móta framtíðina og segja til um það hvert förinni sé heitið. Einstaklingarnir í þessum hóp koma ekki til með að sætta sig við að vera þiggjendur á boðskap eldri stjórnmálamanna. Krafan er að þeir sem eldri eru og reyndari hlusti. Unga fólkið er mótandi umbótaafl sem tilbúið er að taka að sér aukna ábyrgð. Það verður þó ekki gert á meðan eldri þátttakendur í stjórnmálum sitja sem fastast í sínum sætum og sýna ekkert fararsnið.  

Sem betur fer hefur það verið svo að ungu fólki hefur verið treyst til ábyrgðarstarfa í nafni Framsóknarflokksins. Nefni ég sem dæmi að á síðasta kjörtímabili átti flokkurinn þrjá yngstu þingmenn þjóðarinnar. Þá var Birkir Jón Jónsson yngsti formaður fjárlaganefndar/fjárveitinganefndar frá upphafi á síðasta kjörtímabili. Þeirri staðreynd var ekki hampað nóg af forystu flokksins.  

Ungt fólk talar máli ungs fólks. Þingmennirnir Birkir Jón og Höskuldur Þórhallsson hafa á þessu kjörtímabili flutt fjölmörg mál sem snerta hagsmuni þess aldurshóps sem ég hef áður nefnt. Birkir tók t.d. erfiðleika námsmanna erlendis vegna stöðu efnahagsmála fyrstur manna upp á þingi. Hann hefur einnig flutt frumvarp þess efnis að 30% námslána breytist í styrk ljúki námsmaður námi á tilskyldum tíma. Síðast en ekki síst hefur Birkir lagt fram þingsályktunartillögu um að atkvæðagreiðsla fari fram um aðildarviðræður við Evrópusambandið á næsta ári. Höskuldur hefur svo dæmi sé tekið lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að fyrirkækjum verði veittar skattaívilnanir vegna kostnaðar sem þau leggja í vegna rannsókna og þróunar.  

Í heiminum ríkir nú vantraust í garð fjárfesta og bankamanna. En vantraustið er í garð fleiri stétta. Stjórnmálamenn verða að átta sig á því að það ríkir einnig vantraust í garð þeirra. Hvert sem farið er ómar krafan um endurnýjun í forystusveit íslenskra stjórnmálaflokka. Sú krafa er að vissu leyti skiljanleg. Því miður er það hins vegar svo að stjórnmálamenn átta sig ekki alltaf á líftíma sínum í stjórnmálum. Þeir sem átta sig á sinni stöðu stíga til hliðar á meðan hinir sem það ekki gera eru settir af. Það er kostur lýðræðisins. Unga fólkið getur haft heilmikil áhrif þar á.  

Við höfum ungt fólk sem tilbúið er til starfa og leitar að tækifærum, hvort sem það er á vettvangi stjórnmálanna eða í atvinnulífinu. Nú skulum við byggja nýtt Ísland. Uppbyggingu nýja Íslands verður vonandi stýrt af ungu kraftmiklu fólki sem kemur fram með svörin þar sem þeir eldri sigldu í strand.  

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is