Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
27 / 10 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Maður er manns gaman

 Um helgina fór fram velheppnað kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi. Þingið var það þriðja í röðinni af fimm. Það er mjög gaman að fylgjast með þeim umræðum sem fram fara á þingunum. Þær eru vissulega ólíkar milli kjördæma og bera þess öll merki í ár að Íslendingar eru að ganga í gegnum mikið erfiðleikatímabil. 

Þing kjördæmissambandanna eru með mikilvægustu stofnunum innan flokksins. Þar hefur grasrótin tækifæri til þess að koma skilaboðum til þeirra sem standa í stafni flokksins. Oftast halda þingmennirnir sig heldur til hlés á þingunum þar sem þeir eru komnir til þess að hlusta á sína kjósendur. Þannig var það um helgina. Grasrótin talaði og kom skýrum skilaboðum til sinna þingmanna. 

Það er rétt að hrósa skipuleggjendum þingsins fyrir hversu vel var staðið að því. Þingið er það eina af fimm í ár sem nær yfir tvo daga. Það var sett á laugardegi og fóru þá fram umræður um stjórnmálaástandið en á sunnudegi voru lagðar fram ályktanir og unnið í nefndum. Án þess að lítið sé gert úr því starfi sem fram fór í þingsalnum sjálfum þá finnst mér umræðurnar sem fram fara á laugardagskvöldi alltaf vera þær mikilvægustu. Þar hittast menn í allt öðru andrúmslofti en í fundarsalnum, borða, sitja yfir glasi og skemmta sér. 

Rétt er að skora á stjórnir annarra kjördæmissambanda að taka til endurskoðunar fyrirkomulag kjördæmisþinga. Tveggja daga þing eru að mínu mati líklegri til þess að styrkja liðsheildina sem er svo nauðsynleg til þess að ná árangri. Sérstaklega á þetta við um hin víðfeðmu norðvestur- og suðurkjördæmi þar sem erfiðara er að boða til fundar en í kjördæmunum á höfuðborgarsvæðinu. Ég þekki sjálfur vel til í norðvesturkjördæmi og veit að þar væri hægt að setja saman skemmtilegt kvöldverðarhóf á laugardagskvöldi. Ég veit líka að í Suðurkjördæmi hafa þannig hóf einnig margoft verið haldin.

Eggert Sólberg Jónsson

Varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is