 |
13 / 10 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Rússíbanareið
Ég skrifaði síðasta pistil minn á suf.is fyrir viku síðan rétt eftir að forsætisráðherra tilkynnti í aukafréttatíma Sjónvarpinu að ekki yrði gripið til neinna sérstakra ráðstafana vegna þeirrar stöðu sem upp var komin í efnahagslífi þjóðarinnar enda væri ekki ástæða til þess. Fjallið tók joðsótt og það fæddist mús hugsaði maður með sér. Þegar Geir vaknaði á mánudagsmorgun blasti hins vegar við honum öllu verri staða. Það var þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar þörf á sérstökum aðgerðum enda voru tveir af þremur stærstu bönkum þjóðarinnar nánast komnir að fótum fram.
Á mánudagsmorgun boðar Geir formenn stjórnarandstöðuflokkanna á sinn fund þar sem hann gerir þeim í fyrsta sinn grein fyrir þeirri stöðu sem upp er komin. Hann boðar að lagt verði fram frumvarp sem hafi það að markmiði að tryggja áframhaldandi almenna bankastarfssemi í landinu sem og að tryggja innstæður almennings í bönkunum. Loks var Íbúðalánasjóði veitt heimild til þess að taka yfir íbúðalán í eigu annarra fjármálastofnana sem kemur í veg fyrir að almenningur tapi húsnæði sínu þó svo lánveitandinn fari í þrot.
Guði sér lof fyrir að Framsókn stóð vörð um Íbúðalánasjóð á síðustu kjörtímabilum. Slagurinn við bankana og Sjálfstæðisflokkinn sem vildu sjóðinn út af markaðnum var harður og oft á tíðum ósanngjarn. Þá má þakka fyrir að núverandi ríkisstjórn var ekki búin að ganga frá sjóðnum. Hefði sjóðurinn verið einkavæddur eða rekstrargrunvelli hans breytt á sínum tíma og bönkunum alfarið eftirlátin lán til íbúðakaupa væru landsmenn í enn verri málum en þeir eru nú.
Frumvarpið sem gekk réttilega undir nafninu Neyðarlögin var samþykkt seint að kvöldi sl. mánudags með atkvæðum þingmanna Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks. Framsókn gerði þó reyndar fyrirvara við 5. grein frumvarpsins sem gengur mjög langt gegn m.a. jafnræðisákvæði og eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Einnig fékk Fjármálaeftirlit gífurlegar valdheimildir, meira vald en stofnun hefur verið veitt til þessa. Fjármáleftirlitið er nefnilega bara stofnun þar sem ekki starfa lýðræðislega kjörnir fulltrúar.
Þegar lögin höfðu verið samþykkt tóku að gerast bæði fyrirséðir og ófyrirséðir atburðir. Fyrirséð var að Fjármálaeftirlitið myndi fara inn í a.m.k. tvo banka en það að sá þriðji færi einnig í þrot kom á óvart. Það var ekki síst sökum óvargætinna orða seðlabankastjóra sem kveiktu upp Falklandseyja syndrom breskra ráðherra. Sú meðferð sem Bretar veittu Íslendingum var með öllu ófyrirgefanleg og hefðu íslensk stjórnvöld þegar í síðustu viku átt að hefja vinnu við lögsókn á hendur breska ríkinu.
Erlendir blaðamenn flykktust til landsins enda voru höfð uppi þau orð að þjóðin væri á leið í gjaldþrot. Þrátt fyrir fjölda erlendra blaðamanna hér á landi er furðulegt að ráðherrar hafi ekki notað tækifærið til þess að leiðrétta misskilning sem breskir ráðherrar blésu út í þarlendum fjölmiðlum. Til dæmis er ótrúlegt að forsætisráðherra hafi ekki notað tækifærið og komið fram í Newsnight þegar honum bauðst það.
Samfylkingin er út af fyrir sig sér kapítuli í öllu þessu spili. Þingmenn og ráðherrar flokksins vita upp á sig sökina. Þeir gera sér grein fyrir að aðgerðaleysi síðustu 18 mánaða stórskaðaði íslenskan þjóðarhag. Viðtal Kastljóssins við seðlabankastjóra kom annars flokknum vel. Þar með var fundinn einhver sem hægt væri að benda og í leiðinni fría flokkinn ábyrgð á ástandinu. Það olli hins vegar mörgum áhyggjum þegar varaformaður flokksins krafðist afsagnar Seðlabankastjóra. Hann hlýtur að gera sér grein fyrir því að orð varaformanns annars stjórnarflokksins hafi áhrif. Stjórnarkreppa ofan í núverandi efnahagsástand er líklega það versta sem hægt væri að bjóða þjóðinni.
Loks er það viðskiptaráðherra sem situr í örráðuneyti og hefur verið í hlutverki skugga forsætisráðherra síðustu daga. Sú ákvörðun að skipta upp iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu var helst réttlætt með því að vísa í stærð bankakerfisins. Það er því ekki nema von að maður spyrji hvort viðskiptaráðuneytið verði sameinað öðru ráðuneyti á næstu vikum.
Það verður hlutverk sagnfræðinga að skoða betur atburði síðustu viku en ljóst er við fljótlega yfirferð að fjölmörg mistök hafa verið gerð. Sum þeirra gætu orðið þjóðinni og þá sérstaklega ungu fólki dýrkeypt.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður SUF
|
|
 |
|
|