Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
29 / 09 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Aðalfundir og kjördæmisþing

Í tilefni af því að haustin eru tími aðalfunda og kjördæmisþinga í flokksstarfinu er ágætt að fara yfir nokkur atriði sem tengjast þessum samkomum til upprifjunar.

Aðalfundur
Samkvæmt lögum Framsóknarflokksins þarf hvert aðildarfélag að halda aðalfund árlega og ekki síðar en tveimur vikum áður en reglulegt kjördæmisþing er haldið. Félög sem ekki halda aðalfund á réttum tíma missa rétt til að senda fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing þar til aðalfundur hefur verið haldinn. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir sem skráðir eru í félagið viku fyrir aðalfund samkvæmt félagatali á skrifstofu Framsóknarflokksins. Það er ekkert að því að starfa með fleiri en einu aðildarfélagi en kjörgengi og atkvæðisrétt getur félagsmaður aðeins haft í einu félagi innan hvers almanaksárs. Þarft er að brýna fyrir stjórnum aðildarfélaga að senda stjórn viðkomandi kjördæmissambands skýrslu um starf félagsins á síðasta starfsári og upplýsingar um skipan stjórnar.

Á aðalfundi skýra stjórnir félaga frá starfsemi þeirra á liðnu starfsári og leggja fram skoðaða reikninga. Einnig getur verið að lagabreytingar séu samþykktar á aðalfundum. Þær þurfa þá að samrýmast lögum Framsóknarflokksins. Senda þarf lög eða lagabreytingar aðildarfélaga að lokinni samþykkt til stjórnar viðeigandi kjördæmissambands sem metur hvort lögin séu í samræmi við lög sambandsins og/eða flokksins.

Því er beint til stjórna félaga að tilkynna skrifstofu flokksins og forsvarsmönnum SUF hvenær aðalfundir félaga fara fram. Í framhaldinu eru þeir  auglýstir á heimasíðum Framsóknarflokksins og SUF sem og í fréttabréfi Framsóknarflokksins.

Kjördæmisþing
Í hverju kjördæmi hafa flokksfélögin með sér samstarfsvettvang sem kallast kjördæmissamband. Til þeirra kasta koma fyrst og fremst sameiginleg mál eins og stefnumótun um málefni kjördæmisins, útgáfa málgagns í kjördæminu, samskipti við flokksforystuna og þingflokkinn og fleira þess háttar. Formenn kjördæmissambanda eiga einnig sæti í landsstjórn flokksins auk varaformanns kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjavík. Samböndin standa fyrir framboði til Alþingis í sínu kjördæmi og ákveða hvaða aðferð skuli nota við val á frambjóðendum, sjá um framkvæmd hennar auk þess sem þau sjá um rekstur kosningabaráttunnar á sínu svæði.

Á ofangreindu sést að kjördæmissamböndin eru mikilvægar stofnanir innan flokksins. Þing þeirra eru kölluð kjördæmisþing og sækja þau trúnaðarmenn flokksins í hverju kjördæmi. Hvert félag hefur rétt á að senda einn fulltrúa fyrir hverja tíu félagsmenn á þingin en þó aldrei færri en einn fulltrúa úr hverju sveitarfélagi á félagssvæðinu. Fulltrúatala einstakra aðildarfélaga skal miðast við félagaskrá eins og hún liggur fyrir á skrifstofu flokksins einum mánuði fyrir kjördæmisþing. Á þingunum sitja einnig aðalmenn í stjórn hlutaðeigandi kjördæmissambands og aðalmenn í miðstjórn Framsóknarflokksins sem búsettir eru í kjördæminu. Allir félagsmenn hafa þó rétt til að sækja kjördæmisþingin með fullt málfrelsi og tillögurétt.

Á komandi þingum eru farið yfir starfið á liðnu ári, línurnar eru lagðar fyrir næsta starfsár og ályktað verður um málefni kjördæmisins sem og stjórnmálaástandið almennt. Þá eru kjörnir fulltrúar í miðstjórn flokksins til eins árs í senn. Regluleg kjördæmisþing þetta haustið verða eins og hér er greint frá:

      Norðvesturkjördæmi: Laugardagurinn 11. október í Reykholti í Borgarfirði.
      Norðausturkjördæmi: Helgina 25.-26. október á Egilsstöðum.
      Suðurkjördæmi: Laugardagurinn 18. október í Svartsengi í Grindavík.
      Suðvesturkjördæmi: Mánudagurinn 3. nóvember
      Reykjavík: Þriðjudagurinn 21. október í Reykjavík.

Formaður og varaformaður SUF munu mæta á öll kjördæmisþingin til fundar við ungt framsóknarfólk. Þar vonumst við Bryndís til þess að geta átt góðar samræður við ykkur um flokksstarfið, starfið í FUF félögunum, SUF og stjórnmálaástandið almennt.

Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður SUF

Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is