15 / 09 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Menntamálaráđherra gerir ekki neitt
Í síđustu viku spurđi Birkir J. Jónsson, ţingmađur Framsóknarflokksins menntamálaráđherra hvort hiđ opinbera ćtlađi sér ađ koma til móts viđ ţá íslensku námsmenn erlendis sem orđiđ hafa fyrir barđinu á gengishruni íslensku krónunnar. Svör menntamálaráđherra ollu vonbrigđum enda sagđi hún ađ ekki stćđi til ađ gera neitt til ţess ađ koma til móts viđ erfiđa stöđu íslenskra námsmanna erlendis.
Gengisfall íslensku krónunnar hefur bitnađ á íslenskum námsmönnum erlendis eins og öđrum ţeim sem sýsla međ íslenskar krónur. Sá sem ţetta skrifar fékk m.a. kynnast ţví lítillega á eigin skinni síđasta vetur hvernig krónan fer međ námsmenn sem hafa tekjur í íslenskum krónum en ţurfa ađ lifa á dönskum. Ţannig var danska krónan í rétt rúmum 12 krónum íslenskum ţegar haldiđ var út en fór upp í 16,5 á međan dvölinni úti stóđ. Í stađ ţess ađ borga rúmlega 35 ţúsund krónur í leigu fyrir herbergi á mánuđi olli gengisfalliđ ţví ađ leigan fór í 50 ţúsund íslenskar svo eitthvađ sé nefnt.
Lánasjóđur íslenskra námsmanna hefur ţađ fyrirkomulag ađ greiđa einungis út námslán ađ lokinni hverri önn og ţurfa margir námsmenn ađ taka yfirdráttarlán gegn námsloforđi frá sjóđnum í sínum viđskiptabanka til ţess ađ lifa af önnina. Loforđiđ er reiknađ út í mynt námslands miđađ viđ gengi í byrjun annar. Lániđ frá LÍN er hins vegar greitt út miđađ viđ gengi gjaldmiđils eftir ađ önninni lýkur.
Segjum sem svo ađ námsmađur fái námsloforđ upp á 500.000 kr. frá LÍN og semji viđ sinn viđskiptabanka ađ fá 100.000 kr. sendar inn á reikning í Danmörku í upphafi hvers mánađar. Um síđustu áramót fékk námsmađurinn sendar út um 8.000 danskar krónur til ţess ađ lifa af janúar. Hann fékk hins vegar ađeins um 6.000 krónur til ađ lifa af júní.
Vegna krónunnar skila námslánin sér í dag í fćrri evrum, dollurum eđa erlendum krónum en ţau gerđu áđur en krónan hóf ađ falla. Námsmenn ţurftu annađ hvort ađ breyta áćtlunum sínum verulega, draga úr útgjöldum eđa semja um hćrri lán viđ íslenskar bankastofnanir međ verulega íţyngjandi vöxtum. Vextir á yfirdráttarlánum í dag sem geta veriđ frá rúmum 16% upp í 25%. Af milljón króna framfćrsluláni getur einstaklingur ţví veriđ ađ borga um 200 ţúsund krónur í vaxtakostnađ á ári til viđkomandi bankastofnunnar.
Á hinum Norđurlöndunum er farin sú leiđ ađ greiđa námslán út fyrirfram. Slíkt fyrirkomulag myndi losa marga námsmenn úr klóm okurvaxta bankanna. Stjórn LÍN hefur samţykkt ađ skođa kosti og galla ţess ađ taka aftur upp mánađarlegar fyrirframgreiđslur námslána hér á landi en ekki hefur veriđ bođiđ upp á slíkt síđan 1992 ţegar Viđeyjarstjórn sömu afla og nú sitja í ríkisstjórn afnam ţann kost. Ţađ gćti veriđ mjög álitlegur kostur ađ greiđa námslán út reglulegu millibili en ekki í einni greiđslu ţegar viđkomandi hefur sýnt fram á viđunandi námsárangur. Ţađ mun koma verulega til móts viđ námsmenn erlendis.
Ljóst er ađ fjárhagsleg stađa margra námsmanna erlendis er ekki öfundsverđ á međan menntamálaráđherra framfylgir stefnu núverandi ríkisstjórnar ţar sem ekki stendur til ađ koma til móts viđ ţá sem verulega hafa orđiđ fyrir barđinu á krónunni.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformađur SUF
|