 |
01 / 09 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Draumalandið Skagafjörður
Eins og ég hef áður sagt frá þá vaknaði ég í Ásbyrgi fyrir hálfum mánuði síðan eftir skemmtilega sumarhátíð framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi. Í gær vaknaði ég í Varmahlíð við geisla skagfirskrar sólar en á laugardagskvöldið fór fram velheppnuð Héraðshátíð framsóknarmanna í Skagafirði. Árum saman var Héraðshátíðin árviss viðburður og stór partur í skemmtanalífi margra Skagfirðinga. Síðustu ár hefur hátíðin legið í dvala en í ár fannst Skagfirðingum tími til kominn að endurvekja þennan skemmtilega viðburð.
Það kunna það fáir betur en Skagfirðingar að skemmta sér og öðrum. Kvöldið hófst með grillveislu þar sem boðið var upp á skagfirskt lambakjöt. Í kjölfarið tóku við fjölbreytt skemmtiatrið sem hentuðu öllum aldurshópum og má þar nefna dúettinn Fúslega Helga ásamt Vordísi. Úr Skagafirði hafa löngum komið hæfileikaríkir tónlistarmenn og er þetta unga fólk engin undantekning. Álftagerðisbræður stigu á stokk og sungu nokkrar perlur eins og þeim einum er lagið. Hátíðarræðu kvöldsins flutti Guðni Ágústsson og Jón Kristjánsson sagði frá minningum sínum frá því hann var ungur drengur í Skagafirði. Að loknum skemmtiatriðum dönsuðu Skagfirðingar og gestir þeirra inn í nóttina á meðan sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson spilaði undir ásamt hljómsveit.
Hátíðin að þessu sinni var haldin í minningu Guttorms Óskarssonar sem lést í fyrravetur í hárri elli. Guttormur var bóndasonur úr Skagafirði sem heillaðist ungur af gildum og hugsjónum samvinnuhreyfingarinnar. Hann sótti sér menntun í samvinnuskóla Jónasar frá Hriflu og starfaði um áratugi sem gjaldkeri Kaupfélags Skagfirðinga. Á langri ævi gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn sem hann vann af mikilli fórnfýsi. Af Guttormi fer gott orð en þar var á ferðinni maður sem allir sem til hans þekktu treystu og vildu hlíta hans ráðum. Minning hans kemur til með að lifa áfram auk þess sem orðheppni og kímin svör hans koma til með að gleymast seint.
Þeir eru margir framsóknarmennirnir sem líta á Skagafjörðinn sem draumalandið. Þar er enn í dag rekið öflugt kaupfélag og Skagfirðingar treysta Framsóknarflokknum best til að vinna að mikilvægum framfaramálum í þjóðfélaginu. Nægir þar að nefna að flokkurinn er sá stærsti í sveitastjórn Skagafjarðar með 35,2% fylgi á bak við sig. Á bak við þessar tölur liggur þó mikil vinna en ungir framsóknarmenn í Skagafirði hafa ávalt haldið úti öflugu og árangursríku starfi. Þannig höfðu t.d. sjö af níu efstu frambjóðendum flokksins í síðustu sveitastjórnarkosningum í Skagafirði þátt í starfi félagsins.
Árin 2002-2006 bjuggu Skagfirðingar við meirihluta Vinstri grænna og Sjálfstæðismanna í sveitastjórn sem einkenndist af óstjórn og innbyrðis deilum. Á síðustu tveimur árum hefur mikið breyst í stjórn sveitarfélagsins og er það ekki síst að þakka því öfluga framsóknarfólki sem stendur í forsvari fyrir nýjan meirihluta. Það er ótrúlegt að líta yfir þau verk sem meirihlutinn hefur komið í verk á aðeins tveimur árum. Á næstu tveimur árum verður haldið áfram á sömu braut metnaðarfullrar uppbyggingar sem kemur til með að gera Skagafjörð að einu öflugasta sveitarfélagi landsins.
Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður SUF
|
|
 |
|
|