Forsíða  Fréttir  Um SUF  Stefna  Kosningar 2009 
Fréttir Pistlar Myndir
Fréttir
18 / 08 / 2008 | Eggert Sólberg Jónsson
Sumarmorgunn í Ásbyrgi

Í gærmorgun vaknaði ég í tjaldi í Ásbyrgi eftir velheppnaða sumarhátíð framsóknarfólks í Norðausturkjördæmi sem fram fór á laugardagskvöldið. Það er nánast ómögulegt að lýsa þeim straumum sem um smágerðan manninn fara þegar komið er út úr tjaldi að morgni á svo mögnuðum stað. Umhverfis mann er hátt og fagurt byrgið sem Sleipnir sporaði forðum. Einar Benediktsson fangaði vel þær tilfinningar sem bærast um í brjósti þess sem stendur í svipuðum sporum þegar hann segir í kvæðinu Sumarmorgunn í Ásbyrgi.

Ásbyrgi, prýðin vors prúða lands,
perlan við straumanna festi,
frjótt eins og óðal hins fyrsta manns,
fléttar hér blómin í hamranna krans.
Standbjörgin kveðjunni kasta á gesti –
kringd, eins og járn undan hesti.

Framsóknarfólk í Norðausturkjördæmi hefur undanfarin ár fjölmennt á sumarhátíð í Ásbyrgi en þar áður var hátíðin haldin á Lómatjörn þegar Norðurlandskjördæmi eystra var og hét. Hópurinn sem saman var kominn á laugardagskvöldið var fjölmennur, fjölbreyttur og skemmtilegur. Segja má að gestirnir hafi verið á aldrinum 0-99 ára og hvaðan æva af landinu, flestir þó úr kjördæminu sem nær frá Siglufirði suður á Djúpavog. Stemmingin var eins og áður segir engu lík og sáu grillmeistarar kjördæmisins um að grilla ofan í gestina dýrindis kjötmeti. Skipuleggendur laugardagsins eiga mikið hrós skilið fyrir sín störf.

Ungt fólk úr Norðausturkjördæmi hefur mjög látið til sín taka jafnt á sveitastjórnarstiginu sem og á landsvísu. Svo dæmi sé tekið þá er hægt að nefna að af þremur þingmönnum Framsóknar í Norðausturkjördæmi í eru tveir á SUF-aldri, þeir Birkir Jón Jónsson og Höskuldur Þórhallsson. Áður sat Dagný Jónsdóttir á þingi fyrir kjördæmið Þá er Stefán Bogi Sveinsson, aðstoðarmaður Birkis SUF-ari. Haldi flokkurinn áfram á sömu braut í kjördæminu er framtíðin björt þar á bæ.

Fyrir hönd okkar úr forystu SUF sem mættum í Ásbyrgi þakka ég fyrir ánægjulega helgi sem líður seint úr minnum.

Eggert Sólberg Jónsson
Varaformaður SUF
Póstlisti
Netfang
Myndir
2008 © SUF | Allur réttur áskilinn
Samband ungra framsóknarmanna | Hverfisgötu 33 | 101 Reykjavik | 540 4300 | suf@suf.is