31 / 10 / 2006 | Eggert Sólberg Jónsson
Þing Norðurlandaráðs æskunnar
Árlega fyrir þing Norðurlandaráðs er haldið þing
Norðurlandaráðs æskunnar.
Þangað mæta fulltrúar frá flestum þeim stjórnmálaflokkum sem sæti eiga
á þingum Norðurlandanna. Þingið í ár var haldið í Kaupmannahöfn dagana
27. - 29. október. Frá Íslandi sóttu þingið undirritaður f.h. SUF,
Auður Lilja Erlingsdóttir f.h. UVG, Páll Heimisson f.h. SUS auk þess
sem Rakel Rakel Björk Benediktsdóttir var áheyrnarfulltrúi
Nordklúbbsins.
Þema
þingsins í ár var atvinnumál og vinnumarkaðurinn. Á föstudeginum voru
þrír áhugaverðir fyrirlestrar tengdir þessum málum. Peter Palshøj
fjallaði um það sem er ólíkt með vinnumarkaði Norðurlandanna. Niels
Paarup-Petersen talaði um samstarf Svía og Dana á Eyrarsundssvæðinu,
árangur sem náðst hefur með samstarfi og þau vandamál sem upp hafa
komið. Að lokum fjallaði Ludde Enggren um norrænu rannsóknarstofnunina
NordForsk. Þing fulltrúar fengu síðan tækifæri til að ræða saman í
smærri hópum um vinnumarkaðinn og hvert skuli stefna.
Á
laugardag hófst þingið fyrir alvöru. Þá voru til umræðu ályktanir sem
lagðar voru fyrir þingið. Við afgreiðslu þeirra á sunnudag fengu
íslendingar í gegn ályktun sem fól í sér stuðning við sjálfbærar
hvalveiðar. Mikill meirihluti þingfulltrúa greiddi atkvæði með
ályktuninni. Árangur norrænna miðjumanna var nokkuð góður á þinginu. Af
sex ályktunum sem norrænir miðjumenn, NCF (Nordiska Centerungdomens Förbund)
lögðu fram voru fjórar samþykktar. Þær snéru að réttindum
samkynhneigðra til blóð-, sæðis- og eggjagjafa, öfluga
fjarskiptaþjónustu til allra á Norðurlöndunum, sameiginlegt
líffæragjafarsvæði og byggðamál.
Þá var Tytti Seppänen
frá finnska Miðjuflokknum kjörin forseti Norðurlandaráðs æskunnar næsta
árið. Alexander Fosse Anderson frá norska Miðjuflokknum verður fulltrúi
NCF í forsætisnefnd ráðsins næsta árið og Minne Lindberg hans
varamaður. Tytti hefur verið virk í norrænu samstarfi í sex ár, á sæti
í borgarstjórn Åbo og stefnir að þingframboði í finnsku kosningunum í
vor.
Mjög hart
er sótt að norrænu samstarfi í dag og eru margir sem segja samstarfið
innan Norðurlandaráðs vera tímaskekkju. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn
hugsa íbúar svæðisins svipað. Fundir eins og þing Norðurlandaráðs
æskunnar gefa ungum stjórnmálamönnum tækifæri til að hittast og ræða
saman um lausnir á sameiginlegum vandamálum og miðla því sem vel hefur
verið gert annars staðar eða þá misheppnast. Á næstunni þarf t.d. að
halda áfram að vinna að afnámi landamærahindrana, auknu samstarfi í
öryggismálum, efla baráttuna gegn mansali og auka samstarf sem snýr að
rannsóknum, menntun og umhverfismálum svo eitthvað sé nefnt. Samstarf
Norðurlandanna hefur aldrei verið mikilvægara en í dag og er
nauðsynlegt að gera það enn meira áberandi. Norrænt samstarf á fullt
erindi inn í framtíðina.
Eggert Sólberg Jónsson
|