 |
 |
Hlutverk SUF
Samband ungra framsóknarmanna var stofnað að Laugarvatni árið 1938 og er með elstu grasrótarsamtökum ungs fólks á Íslandi. Það samanstendur um þessar mundi
af 20 aðildarfélögum víðast hvar um landið.
Í lögum SUF segir að hlutverk sambandsins sé að efla og samræma starf félaga ungs framsóknarfólks, auka þátttöku og efla hlut félagsmanna sinna í starfi Framsóknarflokksins og afla flokknum fylgis á meðal ungs fólks.
Meginhlutverk SUF má segja að sé þrenns konar:
Í fyrsta lagi að efla og samræma starf FUF-félaganna um landið. Mikilvægt er að SUF styðji við starf FUF félaganna og veiti þá aðstoð sem er á færi SUF að veita.
Í öðru að auka þátttöku og áhrif ungra framsóknarmanna í starfi Framsóknarflokksins.
Í þriðja lagi að afla Framsóknarflokknum fylgis á meðal ungs fólks.
Aðal stofnun SUF er sambandsþing þess sem haldið er árlega að hausti til. Þess á milli fer 13 manna stjórn með stjórn sambandsins sem hittist mánaðarlega og 5 manna framkvæmdastjórn sem sér um daglegan rekstur þess. Fastanefndir SUF eru þrjár: Málefna- og fræðslunefnd, Nefnd um innra starf og Alþjóðanefnd.
|
|
 |
|
|
 |
Stjórn SUF skipa formaður ásamt 12 aðalmönnum og 12 varamönnum kjörnum á sambandsþingi. Stjórn ber ábyrgð á öllu innra starfi SUF og skal funda a.m.k. 8 sinnum á ári og flytja skýrslu um störf sín á Sambandsþingi.
Nýkjörin stjórn kýs úr sínum hópi varaformann, gjaldkera, ritara og ritstjóra sem skipa framkvæmdastjórn ásamt formanni. Framkvæmdastjórn fer með daglegan rekstur sambandsins og undirbýr stjórnarfundi.
Núverandi stjórn var kjörin á sambandsþingi SUF sem haldið var í Mosfellsbæ 12.-13. september 2009
.
Formaður: Bryndís Gunnlaugsdóttir
Stjórn
Agnar Bragi Bragason, Reykjavík
Eggert Sólberg Jónsson, Suðvestur
Einar Freyr Elínarson, Suður
Fjóla Hrund Björnsdóttir, Suður
Guðjón Ebbi Guðjónsson, Norðvestur
Gunnar Gunnarsson, Norðaustur
Heiðar Lind Hansson, Norðvestur
Íris Hauksdóttir, Norðaustur
Jóhanna Hreiðarsdóttir, Reykjavík
Kristbjörg Þórisdóttir, Suðvestur
Kristín Helga Magnúsdóttir, Reykjavík
Steinunn Anna Baldvinsdóttir, Reykjavík
|
|
 |
|
|
 |
|
Miðstjórn var felld út úr lögum SUF með lagabreytingum sem samþykktar voru á 34. Sambandsþingi SUF á Hótel Heklu 7.-8. júní 2008.
|
|
|
 |
|