Hér með er boðað til 37. Sambandsþings Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í Menntaskólanum á Egilsstöðum dagana 11. og 12. febrúar 2012. Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu. Þeir sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn fyrir laugardaginn 14. janúar 2012 á aldrinum 16 til 35 ára og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðarétt á þinginu.
Samkvæmt grein 4.5 í lögum SUF skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en viku fyrir setningu sambandsþings eða fyrir laugardaginn 4. febrúar. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á að hafa samband við þá einstaklinga sem skipa starfsnefnd þingsins eða á netfangið suf@suf.is.
SUF-arar hvattir til þess að skila inn tillögum að ályktunum sem fyrst á netfangið suf@suf.is. Þær tillögur sem liggja fyrir laugardaginn 4. febrúar verða prentaðar með öðrum þinggögnum. Tillögurnar verða ræddar í þeim sex málefnahópum sem starfandi eru á þinginu.
Laugardagur 11. febrúar
11.00 – Skráning og afhending þinggagna
12.00 – Þingsetning
Kosning þingforseta (2)
Kosning þingritara (2)
Kosning starfsnefndar (3)
12.10 – Skýrsla stjórnar og reikningar
12.30 – Málefnahópar kynntir
12.40 – Málefnahópar taka til starf
Hópur 1 – Stjórnskipun, mannréttindi, lýðræði og utanríkismál
Hópur 2 – Efnahagsmál
Hópur 3 – Atvinna, samgöngur og umhverfi
Hópur 4 – Menntun, menning og íþróttir
Hópur 5 – Velferð
Hópur 6 – Lagabreytingar og aðrar tillögur
17.00 – Sundferð
19.00 – Fordrykkur
20.00 – Hátíðarkvöldverður og skemmtun fram eftir kvöldi
Sunnudagur 12. febrúar
09.00 – Málefnahópar, framhald
10.00 – Afgreiðsla mála
12.30 – Hádegismatur
13.15 – Kosningar:
Formaður
Stjórn (12)
Varastjórn (12)
Skoðunarmenn reikninga (2)
Varaskoðunarmenn reikninga (2)
15.30 – Þingslit
Gagnlegar upplýsingar:
Þinggjöld
Þinggjald er 1.000 kr. innifalið í þinggjaldi er kaffi og með því á laugardegi og hádegismatur á sunnudegi, auk þinggagna. Tekið verður á móti greiðslu þinggjalda til kl. 10.30 á sunnudegi.
Fundarstaður
Formleg þingstörf fara fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum við Tjarnarbraut.
Hátíðarkvöldverður
Hátíðarkvöldverður á laugardegi kostar kr. 3.000,-
Seturéttur á þinginu
Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu. Þeir sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn fyrir laugardaginn 14. janúar 2012 á aldrinum 16 til 35 ára og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðarétt á þinginu.
Framboðsfrestur
Samkvæmt grein 4.5 í lögum SUF skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en viku fyrir setningu sambandsþings eða fyrir laugardaginn 4. febrúar. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á að hafa samband við þá einstaklinga sem skipa starfsnefnd þingsins eða á netfangið suf@suf.is.
Lagabreytingatillögur
Samkvæmt grein 6.4 í lögum SUF skal tillögum að lagabreytingum skilað eigi síðar en 14 dögum fyrir setningu þings sambandsins eða fyrir laugardaginn 28. janúar. Tillögum skal skilað á netfangið suf@suf.is.
Málefnastarf
SUF-arar hvattir til þess að skila inn tillögum að ályktunum sem fyrst á netfangið suf@suf.is. Þær tillögur sem liggja fyrir laugardaginn 4. febrúar verða prentaðar með öðrum þinggögnum. Tillögurnar verða ræddar í þeim sex málefnahópum sem starfandi eru á þinginu.
Hópefli
Á laugardeginum kl. 17:00 verður skundað í sund í sundlauginni á Egilsstöðum, æskilegt er því að taka með með sundföt.
Gisting
Eftirfarandi gistirstaðir bjóða upp á afslátt þinghelgina:
Lyngás Guesthouse
Tveggjamanna herbergi 4.000 kr. á mann. – http://lyngas.is/
Hótel Hérað
Þorratilboð hótels Héraðs er tvær nætur á verði einnar. – http://icelandairhotels.is/