Ályktun um höfundarréttarmál

Netbúnaður í notkun

Mynd: vonKinder (Creative Commons by-nc-nd)

Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna samþykkti samhljóða á fundi sínum í kvöld eftirfarandi ályktun:

Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna lýsir sig andsnúna tilfæringum höfundarréttarsamtaka þegar kemur að aukinni ritskoðun og gjaldheimtu á Internetinu. Ef þörf er á endurskoðun á höfundarréttarlögum er nauðsynlegt að hlustað sé á allar raddir samfélagsins án þess að ganga á rétt einstaklinga til tjáningar, einkalífs og fræðslu.

Ályktunin var unnin í framhaldi af hugmyndum STEF og SMÁÍS sem vilja aukið vald og hörku í refsingum og eftirliti með meintum höfundarréttarbrotum en þessar hugmyndir samtakanna koma inn í umræðuna á sama tíma og frumvörpin SOPA og PROTECT IP bíða samþykkis Bandaríkjaþings og alþjóðasamningurinn ACTA bíður samþykkis m.a. hjá Evrópuþinginu.