SUF á Norðurlandaráðsþingi æskunnar 2011

Fulltrúar á Norðurlandaráði æskunnar í Kaupmannahöfn 2011

SUF býðst að senda fulltrúa á þing Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) á hverju ári. Alþjóðanefnd ákvað á fundi sínum að senda þrjá fulltrúa á þingið sem var haldið í Kaupmannahöfn í ár. Sandra Rán Ásgrímsdóttir formaður nefndarinnar var skráð sem þingfulltrúi; og Stefán Vignir Skarphéðinsson og Agnar Bragi Bragason voru skráðir sem áheyrnarfulltrúar.

Allir fulltrúar SUF sátu í málefnahópi 1, sem fjallaði um orku- og auðlindamál. Það sem fulltrúar SUF höfðu helst áhrif á voru ályktun 1 um samnorræna orku- og loftslagsstefnu og ályktun 17 um aukið öryggi í siglingum á Norðurheimsskautssvæðinu.

Breytingatillaga á ályktun 17 var unnin með fulltrúa Ungra jafnaðarmanna (UJ) frá Íslandi en auk þess var haft samráð með fulltrúum íhaldshópsins frá Finnlandi sem hafði þrjá fulltrúa í umræðuhópnum og öllum fulltrúum Grænlands á þinginu. Breytingatillagan var samþykkt en danskir íhaldsmenn gerðu þó fyrirvara um þá kröfu að draga skyldi úr hervæðingu á svæðinu.

Að auki höfðu fulltrúar SUF áhrif á mörg önnur mál sem fóru fyrir þingið og töluðu mikið fyrir breyttri tungumálastefnu UNR, sérstaklega þegar kemur að íslensku, finnsku, færeysku og grænlensku.