Ályktun um smokka

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna áréttar fyrri ályktanir um mikilvægi þess að lækka skatt á smokkum úr 25,5% í 7%. Það er ein þeirra leiða sem eru færar til að gera smokka ódýrari, eins og sóttvarnaráð hefur kallað eftir.

Á síðasta ári greindust 24 einstaklingar hér á landi með HIV, fleiri en nokkru sinni áður. Tíðni leghálskrabbameins hefur einnig aukist, sem orsakast meðal annars af HPV veirusmitum.
Klamedíusmitum hefur einnig fjölgað. Fólk sem hefur ekki efni á smokkum hættir ekki að stunda kynlíf, það hættir að stunda varið kynlíf.